Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1994, Síða 18

Ægir - 01.11.1994, Síða 18
Sjavarutvegsnefnd um Fiskifélagið Starfsemi Fiskifélags íslands hefur tekib nokkrum breytingum á undanförnum árum meb tilkomu Fiskistofu. Verkefnum félagsins hefur fækkaö og þær raddir heyrast ab rétt sé að leggja félagið nibur. Hvert finnst þér að hlutverk Fiskifé- Iagsins eigi að vera, skyldur þess og verkefni, eða er rétt að hætta starfsemi þess? Steingrímur J. Sigfússon Ingibjörg Pálmadóttir Guðjón A. Kristjánsson Gunnlaugur A. Stefánsson Steingrímur J. Sigfússon Alþýðubandalagi Skref afturábak „Ég teldi þaö skref aftur- ábak ab hætta starfsemi Fiskifélagsins eins og nú er háttað uppbyggingu stofn- ana sjávarútvegsins. Fiski- stofa er opinber stjórnsýslu- stofnun, einhvers konar framlengdur armur fram- kvæmdavaldsins sem er sí- fellt að taka ákvaröanir er varða viðkvæma hagsmuni í greininni. Það fer því ekki auðveldlega saman við þetta stjórnsýsluhlutverk að safna og miðla meb hlutlausum hætti upplýsingum, fylgjast með og stuðla ab þróun og nýsköpun á faglegum grunni, vera málstaður greinarinnar út á við, sam- eiginlegur vettvangur allra í sjávarútvegi o.s.frv. Vissu- lega skiptir máli í þessu sambandi hvernig félags- kerfi sjávarútvegsins þróast að öðru leyti. T.d. hvort til verba heildarsamtök allra í sjávarútvegi með sjálfstæða stöbu gangvart stjórnvöld- 18 ÆGIR NÓVEMBER 1994 um, sbr. sameiningu bænda- samtakanna (sameining LÍÚ, SF, Fiskiþings o.fl.). Með tilkomu slíkra heild- arsamtaka gætu auðvitað skapast forsendur til ab stokka upp verkaskiptingu milli aðila þannig að annars vegar yrði um að ræða ráðu- neyti og stjórnsýslustofnan- ir, hins vegar heildarsamtök á faglegum grunni sem sæju um ýmis þau verkefni sem Fiskifélagið sinnir eða hefur sinnt. En þar til þessar aðstæður eru fyrir hendi á ekki að leggja Fiskifélagið niður og það á að annast þau verk- efni sem að ofan greinir." Ingibjörg Pálmadóttir Framsóknarflokki Sameining greininni farsæl „Ég tel ab umræðan um Fiskifélag íslands, sem er virðuleg stofnun á níræðis- aldri, sé af hinu góða. Yfir- lýsingar formanns LÍÚ, Kristjáns Ragnarssonar, að Fiskiþing sé úrelt og gefi ekki raunhæfa mynd af samtökum innan sjávarút- vegsins hafa vakið heiftarleg viðbrögð eins og reyndar flest sem sá ágæti maður segir. Ekki ætla ég ab segja að sannleikanum verði hver sárreiöastur en ég leyfi mér að fullyrða að ef á annað borð er framtíð í samtökun- um muni þessi vibbrögð verba til þess að spýta nýju blóbi í þau, efla þau og styrkja því óneitanlega hef- ur stundum verið ótrúlega mikil þögn yfir ályktunum frá Fiskiþingi. Kall tímans nú er að sam- eina hin ýmsu samtök t.d. innan landbúnaðarins og nú gerast þær raddir hávær- ar ab Samtök fiskvinnslu- stöðva og LÍÚ eigi að ganga í eina sæng. Ég hef mikla trú á að það væri greininni í heild farsælt. Þegar ég er spurð hvert sé framtíðarhlutverk Fiskifé- lagsins tel ég því að áfram verði félagið vettvangur upplýsinga og fræðslustarf- semi og skoðanaskipta inn- an ólíkra greina sjávarút- vegsins þar sem viðhorf fisk- vinnslufólks og sjómanna fá aukið vægi." Guðjón A. Kristjánsson Sjálfstæöisflokki Slæmt verk að leggja félagið niður „Það fer ekki á milli mála að Fiskifélag íslands þarf ab starfa áfram. Ástæður þess eru meðal annars eftirfar- andi. Fiskifélagið og Fiskiþing eru nú nánast eini vettvang- urinn þar sem menn úr öll- um starfsgreinum sjávarút- vegsins hittast og ræða sín mál með öll sjónarmið inni í umræðunni. Það er að vísu afar leitt til þess að vita að LÍÚ skuli nú vilja einangra sig frá umræðunni, en til þess ber að líta að því meiri ástæða er til að hver og einn hinna sem vilja samstarfs- vettvang og bein skoðana- skipti innan sjávarútvegsins haldi samstarfinu áfram. Þrátt fyrir harðar deilur hagsmunaaðila og snörp

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.