Ægir - 01.11.1994, Side 21
sérlega ánægbur með þab fólk sem
valdist með mér í stjóm og varastjórn.
Á þessari stundu er það ekki alveg
mótað í mínum huga hvað beri að
gera. Ég tel þó ab menn verði að
horfast í augu við þab að sums staðar
verbur að sameina fiskideildir. Það þarf
með skipulögðum hætti að fá útvegs-
menn og fleiri til þess að taka virkari
þátt í starfsemi félaganna.
Hvab varðar þá afstöbu LÍÚ að neita
ab senda fulltrúa á Fiskiþing tel ég það
mikil mistök fyrir þá sjálfa. Fiskiþing
og Fiskifélagið standa þó ekki né falla
með ákvörðun LÍÚ. Það er mikilvægt
að LÍÚ sendi fulltrúa sína þó starfandi
útgerðarmenn sitji á Fiskiþingi. Ég hef
rætt við formann LÍÚ og reikna með
ab samskiptin verði góð í framtíöinni."
Fiskifélagið er framfarafélag
Hvemig telur þú að fjármál Fiskifé-
lagsins verði tryggð?
„Ég hef ekki farið ofan í málin til
hlítar en veit að það hefur mátt þola
mikla tekjuskerðingu og á fjárlögum er
ekki gert ráð fyrir sérstakri fjárveitingu
til félagsins.
Menn verba að horfast í augu við
þann veruleika að hagsmuna- og fram-
farafélög eins og Fiskifélagiö geta ekki
ætlast til fjárstuðnings frá hinu opin-
bera. Slíkur stuðningur er tímaskekkja
á vissan hátt og ég held að það sé til
lítils fyrir menn að gráta það hlutskipti
að fá ekki fjárveitingu af fjárlögum til
félagsstarfsins. Ég tel ab ljúka þurfi sem
fyrst stuðningi hins opinbera á þessum
grunni sem og við bændasamtökin.
Fiskifélagið hefur þá sérstöðu að
vera fyrst og fremst framfarafélag en
ekki hagsmunafélag í sama skilningi
og LÍÚ og sjómannasamtökin.
Fiskifélagib er meb mjög verðmætar
upplýsingar og vinnur mjög verðmæt
störf fyrir okkar þjóðfélag og fyrir þessar
upplýsingar ber að borga. Fiskifélagib
getur eitt unnið upplýsingar fyrir
skiptaverðsnefndina sem sett var á lagg-
ir í vor samkvæmt lögum. Ríkisvaldið
og aðrir em ab kaupa þessar upplýsing-
ar, að mínu mati, á of vægu verði.
Ég tel að grundvöllur félagsins verði
best tryggður með samningum um
ákveðin verkefni, einkum fyrir hið op-
inbera. Sjávarútvegurinn þarf einnig
að átta sig á því að Fiskifélagið getur
ekki látiö í té upplýsingar án þess að
greiðsla komi fyrir.
Til viðbótar vil ég nefna að eðlilegt
er að ríkib greiði fyrir fræbslustarfsemi
á vegum Fiskifélagsins. Á vegum tækni-
deildarinnar fara fram grundvallar-
rannsóknir sem ríkinu ber einnig að
standa straum af eins og gildir um abra
slíka starsemi sem fer fram í vísinda-
og rannsóknastofnunum landsins.
Verð á þjónustu tæknideildar ber ab
laga að breyttum þörfum félagsins.
Þessi starfsemi er ómetanleg fyrir sjáv-
arútveginn og þjóðfélagið og leggist
hún af flyst hún úr landi."
Hefur þú einhver hagsmunatengsl við
sjávariítveginn nú?
„Nei. Ég hef ákveðna reynslu af
sjávarútvegi en er nú aiþingismaður
og gegni þess utan tæpast öðrum laun-
uðum störfum. Kannski hefur þetta
„hlutleysi" ef svo má segja verið ein
ástæba þess að til mín var leitað um
formennsku en ég býst líka við að
margir hafi vitað ab ég hef alltaf verið
mikill fiskifélagsmaður og vil berjast
fyrir framgangi félagsins." O
PÓLLINN HF. ©
AÐALSTRÆTI 9-11, P.O.BOX 91, 400 ÍSAFJÖRÐUF I SÍMI 94-3092 FAX 94-4592 POLLINN HF.
ísleitarkastarar
Ljóskastarar
Skipstjórar, útgerðarmenn:
Seljum hina viðurkenndu IBAK-kastara.
Þýsk gæðavara.
3ja áratuga reynsla við erfiðustu aðstæður
í heimi sanna gæðin.
VEIT SÁ ER SÉR
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun
Rafvélar Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki
ÆGIR NÓVEMBER 1994 21