Ægir - 01.11.1994, Page 28
Þorskar eru vitsmunaverur
Segir Logi Jónsson lífeðlisfræðingur í viðtali við Ægi
Páll Ásgeir Ásgeirsson.
Nýlegar tilraunir, sem fariö hafa
fram í Stöövarfirði, sýna fram á að
tiltölulega auðvelt er að hæna villt-
an þorsk ab æti meb hljóðgjafa.
Þetta gefur hugmyndum um fiskeldi
án kvía og vangaveltum um þorsk-
eldi í stórum stíl byr undir báða
vængi. Ægir fór á fund Loga Jóns-
sonar lífeblisfræðings sem hefur
kynnt sér lífeðlisfræbi fiska allvel og
spurbi hann hvort þorskurinn væri
greindur.
„Það er hin mesta hneisa að líkja
heimskingja við þorsk. Þorskar eru
vitsmunaverur. Annars myndu þeir
ekki lifa af.
Þab hafa verið geröar ítarlegar til-
raunir á fiskum almennt, þar á meðal
þorski. Þessar tilraunir felast í hefð-
bundnu áreiti sem er tengt umbun eða
áreiti tengt refsingu. Þab kemur í ljós
að fiskar læra mjög fljótt að tengja
umbun við áreiti. Það tekur þorskinn
aðeins örfá skipti. Þetta er notað í rík-
um mæli í fiskeldi við „fóðrun eftir
þörfum". Þegar fiskurinn er svangur
þarf hann ab koma upp úr vatninu og
ýta við plötu og þá fellur fóður í vatn-
ið. Þetta er hann afar fljótur að læra. Á
þennan hátt er hægt að bæta mjög
fóðurnýtingu."
Fijótur að læra
„Helstu tilraunir sem tengjast þorski
sérstaklega lúta að heyrn þorsksins.
Markmib þeirra var að kanna hve mik-
ið hann heyrði beinlínis og hve mikið
hann skynjaði með hliðarrákinni. Það
var gert með því að mæla hjartslátt
þorsksins og fylgjast meb breytingum
á honum við ýmis hljóð en rafstuö í
sporðinn var látið fylgja í kjölfar
hljóðsins. Mjög fljótlega sýndi þorsk-
urinn hræðsluviðbrögö með hjartslátt-
arbreytingum þegar hljóbið heyrðist."
Þeir sem störfubu við fóðrun
þorskins í Stöðvarfirði þóttust fljótlega
sjá að fiskurinn þekkti hljóðið í bátn-
um sem notaður var. Heyrir þorskurinn
mjög vel?
„Hann heyrir mjög vel en hann
heyrir á allt öbra tíönisviði en maður-
inn. Hann heyrir mjög vel hljób á lágri
tíðni eða svokölluð infrahljóð. Mann-
leg heyrn liggur á bilinu 20-20.000 Hz
og við heyrum best á 1.000-4.000 Hz.
Þorskurinn heyrir fremur illa hljóð
sem liggja yfir 1.000 Hz. Lágtíðnihljób
heyrir hann mjög vel allt niður á
sveiflutíðni þar sem hver hljóðbylgja
Logi Jónsson lífeðlisfræðingur.
tekur 10 sekúndur. Á þessu lága sviði
berst hljóð mjög vel og þarf litla orku
til að flytja það langan veg. Þorskurinn
skynjar einnig mjög vel stefnu hljóðs-
ins."
Ratar hann með eyrunum?
Hvað er það í sjónum sem gefur frá
sér þessa lágu tóna sem þorskurinn
heyrir svo vel?
Það er ekki þorsk að fá
í þessum firði,
þurru landi eru þeir á
og einskis virði.
Páll Ólafsson um Loðmfirðinga.
„Það er margt, t.d. hreyfingar sjávar-
ins. Hringstraumar og rastir við strend-
ur landsins gefa frá sér hljób af þessu
tagi. Hafstraumar þar sem þeir skella á
landgrunnsköntum gefa frá sér hljóð á
lágri tíðni. Það er mjög sennilegt ab
þorskurinn noti meðal annars þessa
næmu lágtíðniheyrn til þess ab rata.
Til gaman má geta þess að svipaður
eiginleiki til þess að greina lágtíðni-
hljób hefur greinst hjá bréfdúfum og
talið ab það eigi sinn þátt í annálaðri
ratvísi þeirra og þær „heyri" t.d. stab-
vinda gnauða á fjöllum.
Hljóð ferðast fimm sinnum hraðar í
vatni en í iofti og getur borist mjög
langt við litla orku."
Út afþessum upplýsingum má leggja
á þann hátt að betra sé að tala við
þorskinn með djúpri röddu en hárri.
Bassar eru því betri en sópranar til þess
að tala við þorsk.
En liafa Islendingar rannsakað
skynjun þorsksins á einhvem hátt?
„Við höfum aöeins skoðað bragð-
skyn hjá þorski. Fiskar hafa mikið af
bragðlaukum, bæði í munninum og
kringum hann. Á skeggþráðum þorsks-
ins eru t.d. næmir bragðlaukar og
hann getur þannig synt eftir botnin-
um og stöðugt verið að smakka á því
sem þar býðst. Vib höfum því miður
haft slæma aðstöðu til þess að halda
sjávarfiska. Tilraunir af þessu tagi er
erfitt ab gera nema í náttúrulegu um-
hverfi.
Nú er Hafrannsóknastofnun að setja
af stað verkefni á Stab í Grindavík sem
lýtur að rannsóknum á tímgun og
uppvexti þorsks á seiöastigi og er það
vel því rannsóknum á þorski í náttúru-
legu umhverfi hefur ekki verið sinnt."
Sér ágætlega
Hvað með aðra skynjun. Sér þorskur-
inn vel?
„Já, hann sér ágætlega en skyggni í
sjó er afar takmarkað. 15 metra
skyggni telst mjög gott á grunnu vatni
og um leið og komið er niður á 20-30
28 ÆGIR NÓVEMBER 1994