Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1994, Síða 29

Ægir - 01.11.1994, Síða 29
metra eru litir horfnir og þar fyrir neöan er myrkur. Þá styðst þorskurinn viö önnur skynfæri. Hann heyrir trúlega sundhreyfing- ar annarra fiska, með hliðarrákinni skynjar hann bylgjuhreyfingar í næsta nágrenni sínu og hefur bragð- og lyktarskyn. Hann hefur nef og lyktarþekju og lyktar- skynið virðist einkum bundið við svokallaða ferómóna sem eru boðefni milli einstak- linga. Þefskynið virðist því einkum sinna samskiptum einstaklinga en getur verið veiðitæki líka. Fiskar reiða sig mjög á bragðskyn. Það er vel þekkt fyrirbæri að fiskar taka fæðu upp í munninn og smjatta á henni og spýta henni iðulega út aftur. Þetta getur endurtekið sig nokkrum sinnum áður en fiskurinn endan- lega ákveður að gleypa fæðuna. Þeir virðast á stundum íhaldsamir á fæðu og þekkt er, t.d. í fiskeldi, að erfitt getur veriö að skipta um fóður. Það eru þrjár mismunandi heilataugar sem sjá um bragðskyn, hver um sinn klasa bragðlauka, og virðist skýr verkaskipting milli þeirra." Hagnýtt gildi Hvert er hagnýtt gildi tilrauna afþessu tagi sem miða að því að þekkja skynjun og gáfna- far fiska? „Það hefur margvíslegt notagildi að þekkja hvernig hægt er að hæna fisk og stjórna honum með hljóðmerkjum. Menn hafa lengi reynt að finna hentuga gervi- beitu. Það er uppfinning sem gæti sparað bæði vinnu og vélakost við línuveiöar. Til þess þurfa menn að þekkja skynfæri og fæðuval þorsks t.d. en þaö hefur komiö í ljós að þetta er ekki einfalt mál. Lykt er ekki samsett úr einu efni heldur fjölmörgum og leitin að réttu blöndunni stendur enn yfir. Smekkur fisks er trúlega misjafn eftir svæð- um og árstíðum svo gervibeita þyrfti að vera af mörgum gerðum. Rannsóknir á skynjun fiska geta leitt í ljós vitneskju sem nýtist við gerð veiðarfæra. Það gæti t.d. verið forvitnilegt aö mæla hljóð sem veiðarfæri gefa frá sér í sjónum. Það er brýnt að við skiljum sem flesta þætti í líffræði þorsksins og annarra nytja- fiska. Við þurfum að afla sem allra mestrar grunnþekkingar því mörg dæmi sýna að erfitt er að sjá fyrir hvenær þörf verður fyrir þekkinguna." □ Sértílboð 1 til lesenda Ægis LÁRUS HÓMÓPAH Náttúrulæknir í hörðu stríði við illvíga sjúkdóma. Elskaður af alþýðu en litinn homauga af yfirvöldum. Einstæð bók um sigra og ósigra ógleymanlegs manns í starfi og einkalífi eftír Guðrúnu P. Helgadóttur. JÓIAGJÖFIN í ÁR Vitjið bókarinnar hjá Skerplu. Sendum í póstkröfu hvert á land sem er fyrir aðeins 200 krónur. skerpla Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík Sími 91-681225 Bréfsími 91-681224 ÆGIR NÓVEMBER 1994 29

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.