Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1994, Page 40

Ægir - 01.11.1994, Page 40
sem fylgir tækninni sem stöðugt fleygir fram og mun þess- um stöövum fjölga mjög á næstu árum. Slíkar stöðvar hafa þegar verið settar upp á nokkrum annesjum þar sem ekki hafa veriö veðurathuganir ábur, t.d. á Bjargtöngum og Fonti á Langanesi og verib er ab setja upp slíka stöb upp vib Skarðsfjöruvita. Fyrsta sjálfvirka stöðin var sett upp á Kam- banesi milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar þegar búseta þar lagðist af fyrir nokkrum árum. Auk þessa eru þegar sjálf- virkar stöbvar á Gjögri og Grímsey. „Þab er síöan markmib okkar að miðla upplýsingunum beint til notendanna sem eru ekki síst sjómenn," sagði Magnús í samtali við Ægi. Hann taldi vænlegast að tengja net slíkra stöðva við sjálfvirka símsvörunarþjónustu sem notendur greiddu lítillega fyrir. Hann sagði að við staðsetn- ingu stöðvanna yrði tekið tillit til óska sjómanna og íbúa á hverju svæði enda væru það sjómenn á smærri bátum sem reiddu sig mest á þessa þjónustu. Á a.m.k. tveimur stöðum á landinu er um slíka beina miölun að ræöa nú þegar. Á Höfn í Hornafirði og Grindavík eru reknar sjálfvirkar stöðv- ar sem eru tengdar beint við tölvu á hafnarvoginni. Þar er einnig aflestur af öldumælisduflum við innsiglingu og er þessi þjónusta mjög mikið notuð. Þessar stöðvar eru í eigu Vita- og hafnamálastofnunar. Magnús Jónsson veðurstofustjóri: „Veðurstofan á í þeim vanda að henni er í vaxandi mæli gert að afla sér eigin tekna af þjónustu sem hún selur. Það er mjög óþægilegt og algjörlega óviðunandi fyrir okkur að þurfa að standa í einhvers konar samkeppni við aðrar ríkisstofnanir eins og Vegagerðina sem er í annarri aðstöðu." „Þaö hafa komið upp nokkur vandamál með fjarskipti á þeim stöðum þar sem sambandið vib sjálfvirku stöövarnar byggir á farsímasambandi. Þab eru skuggar í farsímakerfinu sem útiloka uppsetningu slíkra stöðva á nokkrum stöðum. Gervihnattasamband kæmi til greina en er mjög dýrt," sagði Magnús. Sjómenn hafa horft með nokkurri öfund til sjálfvirks veðureftirlits sem Vegagerðin hefur komið upp á nokkrum stöðum á landinu og er tengt beint við textavarp Sjónvarps. Magnús var spurður hvort slík tenging kæmi til greina. „Veðurstofan á í þeim vanda að henni er í vaxandi mæli gert að afla sér eigin tekna af þjónustu sem hún selur. Það er mjög óþægilegt og algjörlega óviðunandi fyrir okkur að þurfa að standa í einhvers konar samkeppni við aðrar ríkis- stofnanir eins og Vegagerðina sem er í annarri aðstöðu. Ég hef farið fram á að þetta mál verði tekið upp á ráðuneytis- grundvelli." Krafan um að Veðurstofan veiti frjálsan og ókeypis að- gang ab veðurspám gegnum textavarpiö samræmist illa kröfunum um auknar sértekjur en trúlega verður slík miðl- un að veruleika í náinni framtíð. Hugmyndir eru í gangi um að veita upplýsingum frá öllum sjálfvirkum stöbvum inn í textavarpið. „Við teljum að aðgengi gegnum síma sé hagkvæmast fyr- ir alla sem þurfa að nota þessa þjónustu. Það er útilokað að koma öllum upplýsingum til skila gegnum útvarp eins og gert hefur verið. í framtíðinni geta menn svo tengst slíkri þjónustu gegnum tölvur og símamódem. Nú þegar hafa nokkrir aðilar slíkan abgang að upplýsingum Veburstofunn- ar." Stýrimannaskólinn Fjársvelti dregur úr öryggisfræðslu Páll Ægir Pétursson kennari „Það hefur mjög dregið úr framlögum stjórnvalda til Stýrimannaskólans. Nemendum hefur fækkað en tímum hefur einnig fækkað og meðal annars hefur þetta leitt til þess að öryggisfræbsla hefur dregist saman. Áður var farið í æfingaferðir meb varðskipi en nú eru þessar feröir aflagðar nema fyrir útsjónarsemi einstakra nemenda og kennara," sagði Páll Ægir Pétursson kennari við Stýrimannaskólann í samtali við Ægi. í æfingaferðum þessum er æfð beiting skips fari maður fyrir borö og farið í ýmis öryggisatriði. Páll Ægir er að leggja síðustu hönd á öryggishandbók fyr- ir verðandi sjómenn og yfirmenn skipa sem hann hefur samið fyrir menntamálaráðuneytið. í bókinni er fjallað um skipið sjálft og helstu gerðir skipa, veibarfæri, stjórntæki, sjóvinnu, meðferð afla, vinnuvistfræbi. Sérstakur hluti bók- arinnar fjallar um öryggismál sjómanna og þriðji og síðasti hlutinn fjallar um umhverfismál. Nefnd á vegum menntamálaráðuneytis er að endurskoða menntamál sjávarútvegsins og umrædd handbók verður hluti af þeirri endurskoðun sem meðal annars miðar að því að koma kennslu í sjávarútvegsfræðum inn í grunnskólana. 40 ÆGIR NÓVEMBER 1994

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.