Ægir - 01.11.1994, Page 44
Að sögn starfsmanna Siglingamálastofnunar gætir nokk-
urs misskilnings bæði meðal sjómanna og annarra á því
hvað sé átt við þegar talað er um björgunarbúninga.
Samkvæmt reglugerð skal hvert skip 12 metrar að lengd
eða meira vera búið björgunarbúningum fyrir alla skipverja.
Flot er uppdrifskraftur mældur í N (newton). 10 N fleytir
um það bil 1 kg af t.d. járni. □
Námskeið
Haldin verða námskeið við
Slysavarnaskóla sjómanna sem hér segir:
Almennt námskeið:
- Reykjavík 7.-11. nóv.
- Stykkishólmur 13.-16. nóv.
- Reykjavík 21 -24. nóv.
- Reykjavík 28.-1. des.
- Reykjavík 5.-8. des.
Lyfjakistunámskeið 30.-2. des.
Slysavarnaskóli sjómanna
Sími 91-624884 • 985-20028
Spánverjar ekki í Norðursjóinn
Nú er tekist harkalega á um hvort Spánverjum verði
leyft að veiða í Norðursjó í samræmi við fiskveiðistefnu
Evrópusambandsins. Fiskimenn á Shetlandseyjum og í
Skotlandi eru lítt hrifnir af þeim áformum og enn minna
hrifnir af leyndinni sem hvílir yfir samningaviðræðunum.
Þeim varð ögn rórra um miðjan október þegar sir Hector
Monro sjávarútvegsráöherra Skota lýsti því yfir á fundi aö
Spánverjum yröi aldrei hleypt inn í Norðursjó. Svart-
sýnismenn segja þó loforð hans innantóm og bíða niður-
staðna viðræðna.
(Fishing News okt. 1994)
Skrápflúra finnst í Barentshafi
Norskir fiskifræðingar hafa fundið talsvert magn af
skrápflúru í Barentshafi sem ekki var vitað um áður. Áætl-
uð stofnstærð er um 200 þúsund tonn og þess vænst að
stofninn geti gefið vel af sér í framtíðinni eða allt að 100
þúsund tonn á ári. Ágætur markaður er í Bandaríkjunum
og Kanada fyrir skrápflúruflök og söluhorfur þokkalegar á
Spáni og Ítalíu. Norskir fiskifræðingar hvetja til varfærni
og vilja þróa veiðarnar hægt og rólega.
(Fishing News okt. 1994)
Dýrasti fiskur í Svíþjóð
Hæsta verð sem vitað er til að sænskir fiskimenn hafi
fengið var greitt á uppboði í Stokkhólmi nýlega. Þar fór
9,5 kílóa þungur sverðfiskur, veiddur í Skagerrak á 300
sænskar krónur kílóið eða um 2.900 ísl. kr. Sverðfiskur er
afar sjaldséð veiði á þessum slóðum en þykir mikið lostæti
á veitingahúsum og þaö var einmitt veitingamaður sem
keypti.
(Yrkesfiskaren okt. 1994)
Byggt yfir fisk á hafsbotni
Á 40 metra dýpi út af Ure við Lofoten í Norður-Noregi
er verið að gera merkar tilraunir með fiskhýsi á hafsbotni.
Þar hefur verið sökkt niður tveimur steinsteyptum
„byggðakjörnum" fyrir fisk sem hvor um sig er settur
saman úr tólf einingum og vega þeir samtals 60 tonn og
kosta 2,5 milljónir norskra króna.
Það er vel þekkt fyrirbæri að fiskur laðast að skipsflök-
um og fleiri hlutum á hafsbotni, s.s. olíuborpöllum og
öðrum mannvirkjum, leitar þar skjóls og leitar ætis í
gróðri sem fljótlega tekur sér bólfestu þar.
Vísindamenn af ýmsu tagi munu fylgjast náið með því
hvernig fiskur tekur sér bólfestu í þessum nýju
peningshúsum og reyna að ráða í það hvort hér muni
vera um vænlega aðferð við fiskeldi að ræða.
(Fiskaren okt. 1994)
44 ÆGIR NÓVEMBER 1994