Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Síða 23

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Síða 23
hins vegar aldrei túlka lagareglu eða beita lögskýringu að eigin geðþótta. Hann verður að beita viðurkenndum lögskýringaraðferðum og gæta að réttri, hefð- bundinni og viðeigandi notkun réttarheimildanna. Hann þarf að geta greint á milli pólitískra skoðana og lögfræðilegs ágreinings þótt mörkin þar á milli kunni að vera óskýr. Hann verður að gæta þess að hallast ekki á sveif með hinum pólitísku rökum þegar engin þörf er á því, svo sem þegar lausnin fæst með því að leysa úr málinu eftir viðurkenndum lögfræðilegum aðferðum. Með þessu eru gerðar miklar kröfur til þeirra sem fara mcð dómarastörf. Hæfileikar dómara til að greiða úr þessu, og velja hina lögfræðilegu úrlausn fram yfir þá lausn sem unnt væri að komast að með svokölluðum pólitískum rökum, koma þar vissulega að gagni. Slíka hæfileika þyrfti að hafa í huga þegar metin er hæfni viðkomandi til að gegna dómarastarfi. Mikilvægt er hins vegar að dómarar verði ekki metnir til hæfileika á grundvelli pólitískrar afstöðu þeirra. Hæfileikana þarf að meta á hlutlausum og faglegum grunni, eins og nánar verður fjallað um í köflum 8 og 9 hér á eftir. Hæfileikana þarf að skil- greina út frá verkefnum dómstólanna og nánari lýsingum á þeim. Slíkt krefst þekkingar á dómarastarfinu og meðferð dómsvaldsins. Af framangreindu má sjá að ekki eru það endilega dómstólamir sem leita eftir að færa út valdsvið sitt. Þessar breytingar sem um ræðir eru meðal annars til komnar vegna flóknari og sífellt breytilegra þjóðfélagsaðstæðna, sem leiða meðal annars til erfiðleika við lagasetningu, alþjóðaviðskipta og vaxandi sam- keppni í viðskiptalífinu og lögfestingu mannréttindaákvæða. í kjölfarið fylgja auknar kröfur til dómstólanna, svo sem um sjálfstæði, hlutleysi, skilvirkni og vandaðar úrlausnir. Einnig eru áberandi kröfur nútímans um að dómsvaldið njóti trausts.23 Hlutverk dómstóla hefur að þessu leyti breyst, enda verður að gera ráð fyrir að dómsvaldið þróist og aðlagist kröfum hvers tíma þrátt fyrir að það standi enn á sama grunni og áður. Þeir sem fara með dómsvaldið verða þó að gæta þess að með kröfum um þróun og aðlögun er ekki til þess ætlast að dómstólar fari út fyrir þær lagalegu heimildir sem þeir hafa, en valdmörkin þarf að sjálfsögðu að virða. Aðferðir lögfræðinnar kunna að vera að nokkru leyti úreltar til að með þeim verði skilgreint nægilega hvar mörkin liggja. Þessa þróun verður engu að síður að hafa í huga við skilgreiningar á dómsvaldinu. Þróunin hefur augljós- lega stefnt í þá átt að enn brýnna er en áður að varðveita hlutleysið.24 í því sambandi gæti verið gagnlegt að efla hér á landi fræðilegar rannsóknir á dóms- 23 Sjá t.d. í því sambandi athugasemdir, sem fylgdu frumvarpi til dómstólalaga í Alþingistíðindunr A, 122. löggjafarþing, þskj. 176, 176. mál, álit umboðsmanns Alþingis 3. maí 2004, „Domstolsud- valgets betænkning" og „Domstolene i samfundet“. 24 Þróun dómsvaldsins í Danmörku á síðustu áratugum er útskýrð í „Domstolsudvalgets betænk- ning“, bls. 173-175. Á bls. 175 segir: „Udviklingen understreger betydningen af domstolene som en uafhængig tredie statsmagt" 481
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.