Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 32

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 32
leggja rétt mat á það sem máli skiptir. Faglegu og hlutlausu mati er einmitt ætlað að tryggja að hæfasti umsækjandinn verði valinn hverju sinni til að gegna því dómarastarfi sem um ræðir og að annað hafi þar ekki áhrif. Takist það mun það efla dómstólana og traustið til þeirra. Dómari sem metinn hefur verið mjög vel hæfur til að gegna dómarastöðu á faglegum grundvelli af hlutlausum aðila ætti að njóta fyllsta trausts.38 Dómstólarnir njóta ekki trausts nema borið sé traust til hvers og eins dómara. Af þeim sökum er augljóslega mikið í húfi, en hagsmunirnir eru þeir að allir geti treyst því að vel og réttilega sé staðið að því að velja dómara í embætti. Verði þess ekki gætt er hætta á að traustið til dóm- stólanna og úrlausna þeirra glatist. Komi til þess standa dómstólamir tæpast undir þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra í réttarríkinu. Við faglegt mat á hæfni umsækjanda um dómarastöðu er gagnlegt að skilgreina dómarastarfið og hverra hæfileika er helst þörf til að gegna því. I 2. mgr. 4. gr. reglna um störf dómnefndar samkvæmt 3. mgr. 12. gr. laga nr. 15/1998 segir að dómnefndin skuli hafa til hliðsjónar eftirtalin atriði við mat á hæfni umsækjenda um dómarastarf; starfsferil, fræðilega þekkingu, almenna og sérstaka starfshæfni og góð tök á íslensku máli. I 3. mgr. sömu greinar regln- anna segir að dómnefndin geti sett sér frekari verklagsreglur við mat á hæfni umsækjenda sem dómsmálaráðherra skuli samþykkja. I verklagsreglum nefndarinnar frá 23. mars 2001 er skilgreint til hvers dómnefndin muni einkum taka tillit í mati á starfsreynslu, fræðilegri þekkingu svo og á almennri og sérstakri starfshæfni. Um mat á persónuleika segir að umsækjandi þurfi að eiga auðvelt með mannleg samskipti, bæði við samstarfsmenn og þá sem erindi eiga við hann. Ætlast sé til þess að af umsækjanda fari gott orð, bæði í fyrri störfum og utan starfa, og að reglusemi hans sé í engu ábótavant. Hann verði að þola umfjöllun fjölmiðla og annarra um mál sem hann komi til með að fara með án þess að láta utanaðkomandi hafa áhrif á störf sín. Þegar litið er til dómarastarfsins verður jafnframt að gera þær kröfur að dómari geti gengið rösklega til verks þar sem ætlast er til þess að hann skili verulegum afköstum og hann verður að vera fær um að taka ákvarðanir af öryggi, þekkingu og festu. Hann þarf að vera vel fær um að setja sig inn í hin fjölbreytilegu mál og skilja um hvað hvert og eitt þeirra snýst. Hann þarf því að vera opinn fyrir ólíkum sjónarmiðum og vera fær um að hlusta á og meðtaka það sem málsaðilar hafa fram að færa. Einnig þarf hann að geta stjórnað þinghöldum með röggsemi og festu og sett mál sitt fram, skriflega og munn- lega, með skýrum og greinargóðum hætti á góðu máli. Þar sem ríkar kröfur eru gerðar til gæða dómsúrlausna þarf að skilgreina hvað mætti helst hafa til marks um það hvort viðkomandi verði fær um að standast þær kröfur. Þar er í raun um 38 í áliti umboðsmanns Alþingis er talið mikilvægt að hver og einn dómari njóti trausts. Á bls. 27 í álitinu segir að unt leið og miklu skipti að hverju sinni veljist sem hæfastir einstaklingar til starfa innan dómstólanna þurfi þeir, og þá sérstaklega Hæstiréttur. og einstakir dómendur að njóta trausts jafnt almennings sem fyrirsvarsmanna annarra þátta ríkisvaldsins. 490
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.