Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Síða 48
3.2 Jafnræði og jafnrétti fyrir samkynhneigð pör í ríkjum ESB
Afstaða aðildarríkja ESB til aukins jafnréttis til handa samkynhneigðum
pörum spannar breitt bil. I nýlegri Gallup könnun kom í ljós að 57% íbúa þeirra
15 ríkja sem aðild áttu að ESB fyrir maí 2004 voru fylgjandi hjúskap sam-
kynhneigðra á meðan aðeins 23% íbúa nýju ríkjanna voru sömu skoðunar. Bilið
spannaði allt frá 82% fylgi dönsku þjóðarinnar með hjúskap samkynhneigðra
niður í einungis 9% Kýpurbúa.28
Mörg hinna gömlu29 aðildarríkja ESB veita samkynhneigðum pörum ein-
hvers konar réttarvernd en töluverður munur er þó til staðar. Holland og Belgía
heimila hjúskap á meðan lög Austurríkis, Grikklands, Irlands, Italíu og Lúxem-
borgar gera ekki ráð fyrir neins konar sambandi samkynhneigðra. Hin eldri ríki
bjóða síðan upp á einhvers konar staðfesta samvist með mismunandi réttar-
áhrifum þó, allt frá táknrænu gildi eingöngu og upp í sömu réttindi og skyldur
og fylgja hjúskap.
Af þeim 10 nýju ríkjum sem gerðust aðilar að ESB 1. maí 2004 eru átta Mið-
og Austur-Evrópuríki og tvö eyríki.30 Meðal skilyrða fyrir inngöngu þessara
ríkja voru virðing fyrir lýðræði, mannréttindum og lögmætisreglunni. Því miður
sýndu þessi ríki ekki mikla virðingu fyrir réttindum samkynhneigðra para í
aðildarferlinu. Að Ungverjalandi undanskildu viðurkennir ekkert ríkjanna
samvistir eða sambúð samkynhneigðra. Það hefur verið reynt án árangurs að fá
samþykkt lög þessa efnis í bæði Tékklandi og Lettlandi, og reyndar var lagt
fram frumvarp í Litháen á árinu 2000 þar sem lagt var til bann við hjúskap
samkynhneigðra.31 Að auki gaf Pólland út yfirlýsingu um almennt siðgæði í
tengslum við aðildarsamning sinn við ESB þess efnis að ekkert í Maastricht-
sáttmálanum hindraði pólska ríkið í að setja reglur þegar kæmi að málum sent
hefðu siðferðilegt vægi.32 Það er þó ljóst að þessi yfirlýsing hefur ekkert laga-
legt gildi og raunar gáfu gömlu ríkin út gagnyfirlýsingu um að yfirlýsing
Pólverja yrði ekki túlkuð gagnstætt skyldum aðildarríkjanna.33
27 Upplýsingar í þessum kafla koma mestmegnis úr Legal Marriage Report; Global status of Legal
Marriage, eftir Demian, 2003, sem aðgengileg er á slóðinni www.buddybuddy.com/mar-repo.html
en aðrar heimildir á veraldarvefnum voru skoðaðar bakgrunnsins vegna.
28 EOS Gallup Evrópu könnun sem greint var frá í EURO-LETTER, október 2003, bls. 3.
Aðgengileg á slóðinni http://www.steff.suite.dk/eurolet/eur„109.pdf. Að auki eru þrjú ríki að sækja
um aðild að ESB, Búlgaría, Rúmenía og Tyrkland. Samkvæmt könnuninni er fylgi þeirra við hjúskap
samkynhneigðra takmarkað eða 20%, 17% og 16% íbúa.
29 Austurríki, Belgía, Dannrörk, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, írland, Ítalía, Lúxemborg,
Portúgal, Spánn, Stóra-Bretland, Svíþjóð og Þýskaland sem öll voru aðilar að ESB fyrir maí 2004.
30 Eistland, Lettland, Litháen, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland, Ungverjaland og svo Kýpur
og Malta.
31 International Lesbian and Gay Association: World Legal Survey. Aðgengileg á slóðinni
http://www.ilga. info/Information/Legal„survey/ilga„world„legal„survey%20introduction.htm.
32 Eða „nothing in the provisions of the Treaty on European Union prevents the Polish State in
regulating questions of moral significance".
33 Ur yfirlýsingu þeirra sem umboð höfðu lil undirritunar aðildarsamnings hinna nýju ríkja að ESB
2003: „will not be interpreted or applied in a way contrary to the obligations of the Member States
arising from the Treaty and Act of Accession".
506