Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 50

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 50
innlimuð í stjómarskrána samkvæmt grein 1-9(1) sem þýðir að hún fær lagalegt gildi þegar og ef öll aðildarríki fullgilda hana. Af ofangreindu er ljóst að mannréttindi hafa þróast mikið frá Rómarsátt- málanum 1957 og dymar virðast opnar fyrir frekari framsækinni þróun þeirra þ.á m. á réttindum samkynhneigðra para. 4.2 Sérstaklega um bannið við mismunun Til að ná markmiðinu um sameiginlegan markað hefur mismunun á grund- velli þjóðemis verið bönnuð frá upphafi. Fljótlega kom í ljós að mismunun á grundvelli kynferðis kom einnig í veg fyrir efnahagslega aðlögun á svæðinu og árið 1978 komst ESB-dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að afnám slíkrar mis- mununar væri almenn Evrópuréttarregla.40 Síðan þá hefur umfangsmikið reglu- verk þróast til höfuðs slíkri mismunun. Til samanburðar má benda á að engin vemd var til staðar gegn mismunun á grundvelli kynhneigðar fyrr en með Amsterdamsáttmálanum sem bætti nýju ákvæði í grein 13(1) Rómarsáttmálans: Without prejudice to the other provisions of this Treaty and within the limits of the powers conferred by it upon the Community, the Council, acting unanimously on a proposal from the Commission and after consulting the European Parliament, may take appropriate action to combat discrimination based on sex, racial or ethnic origin, religion or belief, disability, age or sexual orientation. Þetta var í fyrsta skipti sem kveðið er á um bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar í alþjóðlegum samningi.41 Akvæðið hefur þó ekki bein réttaráhrif fyrir borgara ESB heldur heimilar það stofnunum ESB að berjast gegn mis- munun á þessum grundvelli. Sambandið hefur á þessum grunni til að mynda bætt við ákvæði um bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar í Réttinda- skrá ESB42 og gefið út rammatilskipun um jafna meðferð á vinnumarkaði43 sem er bindandi fyrir aðildarríki ESB og hefur bein réttaráhrif. 4.3 Ríkisborgarar ESB, frjáls för og búseta þeirra Hugtakið ESB ríkisborgari kom til sögunnar við stofnun ESB með Maastrichtsáttmálanum.44 ESB ríkisborgararétturinn kemur til viðbótar al- mennum ríkisborgararétti og veitir einungis rétt innan valdsviðs ESB.45 Grein 40 Mál C-149/79, Defrenne gegn Sabena. [1978] ECR 1365. 41 Human Rights Education Association: Study Guide on Sexual Orientation and Human Rights. Aðgengileg á slóðinni http://www.hrea.org/learn/guides/lgbt.html. 42 21. grein. 43 Council Directive 2000/78/EC establishing a general framework for equal treatment in employ- ment and occupation, frá 27. nóvember 2000. 44 8. gr. Maastrichtsáttmálans, nú 17. gr. Rómarsáttmálans. 45 Takmarkað gildi réttarins hefur verið gagnrýnt, sjá t.d. Philip Alston og J.H.H. Weiler: „An „Ever Closer Union“ in Need of a Human Rights Policy". European Joumal of Intemational Law. 9. bindi. 4. tölublað 1998, bls. 716. 508
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.