Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Side 62

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Side 62
vöntun á viðurkenningu samkynhneigðra para og leiðir það oft til hindrana á frjálsri för og búsetu þeirra. Með stigvaxandi samruna og aðlögun aðildarríkja ESB er nauðsynlegt að gera betur til að ESB ríkisborgararéttur verði meira en táknrænn. Þegar kemur að réttindum samkynhneigðra para hefur ESB-dóm- stóllinn því miður ekki gripið þau tækifæri sem hann hefur fengið til að sýna sömu djörfung og hann sýndi þegar kenningar um grundvallarréttindi innan ESB litu dagsins Ijós. Samkvæmt dómi ESB-dómstólsins í máli D gegn Ráðinu og tilskipun ESB um rétt ESB ríkisborgara og fjölskyldna þeirra til frjálsrar farar og búsetu eru samkynhneigð pör í staðfestri samvist í raun meðhöndluð eins og tveir einstaklingar. Ut frá sjónarhomi mannréttinda er þetta óásættanleg staða einkum á tímum hnattvæðingarinnar og tíðra búferlaskipta. Augljós lausn ríkja sem standa vörð um réttindi samkynhneigðra para er að hverfa frá stað- festri samvist og veita þessum pörum einfaldlega aðgang að hjúskapar- stofnuninni líkt og þegar hefur verið gert í Hollandi og Belgíu. Það er vaxandi samstaða innan Evrópu um vemdun réttinda samkyn- hneigðra para. Sömuleiðis er eining milli lagaramma ESB og MSE um að alls- herjarregla og almennt siðgæði geti vart réttlætt mismunun á grundvelli ky- hneigðar og það þó að tillit sé tekið til þess svigrúms sem aðildarríkin hafa almennt. Enda er nánast óhugsandi að réttarstaða samkynhneigðra para sem jafnvel eru í staðfestri samvist breytist við búferlaflutning með tilheyrandi persónulegum og efnahagslegum afleiðingum. Með allt ofangreint í huga væri dómstólum í Evrópu nær að hafna því að sambönd samkynhneigðra séu ekki verð sömu viðurkenningar og sambönd gagnkynhneigðra. Þess í stað ætti að sýna samkynhneigðum pörum þá mann- legu virðingu sem er eðlislæg stjórnarskrám lýðræðisríkja og innbyggð er í alla alþjóðasáttmála á sviði mannréttinda. HEIMILIDIR: Bækur: Oddný Mjöll Arnardóttir: Equality and Non-Discrimination under the European Convention on Human Rights. 2003. Arnull, A.: The European Union and its Court of Justice. Oxford 1999. Betten og Griel: EU Law and Human Rights. 1998. Craig, P. og de Búrca, G.: EU Law. Text, Cases and Materials. Oxford 2003. Guild, E.: „Free Movement and Same-Sex Relationships: Existing EC Law and Article 13 EC, Legal Recognition of Same-Sex Partnerships, A study of National, European and International Law“. I safni Wintemute. Oxford 2001. Ovey, C. og White, R.C.A.: Jacobs and White - European Convention on Human Rights. Oxford 2002. Shaw, J.: „Gender and the Court of Justice: The European Court of Justice". í safni de Búrca og Weiler. Oxford 2001. Wintemute, R.: Sexual Orientation and Human Rights. Oxford 1995. 520
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.