Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Qupperneq 67
keppnisstofnunar verði ekki borin undir dómstóla fyrr en úrskurður áfrýjunar-
nefndar liggur fyrir.
Ekki er mælt fyrir um það í samkeppnislögum að Samkeppnisstofnun og
Samkeppnisráð séu sjálfstæð stjórnvöld, sem e.t.v. má segja að sé nokkuð
ankannalegt sé litið til þeirra verkefna sem þeim er falið að inna af hendi. Þar
sem ekki er um að ræða sjálfstæð stjómvöld hefur viðskiptaráðherra þær
almennu stjómunar- og eftirlitsheimildir sem leiða af almennum reglum stjóm-
sýsluréttar.1 Rétt er að taka fram að af fyrirmælum 5. gr. um að Samkeppnisráð
og Samkeppnisstofnun annist daglega stjómsýslu þessara mála verður ekki
dregin sú ályktun að um sjálfstæð stjómvöld sé að ræða. Ráðherrar hver á sínu
sviði fara með yfirstjórn stjómsýslunnar, nema hún sé að lögum undanskilin
valdi þeirra.2 Umboðsmaður Alþingis hefur komist svo að orði að af þessu leiði
að kveði lög ekki skýrt á um sjálfstæði stjómvalds, og verði sú ályktun heldur
ekki leidd af ákvæðum laga með fullri vissu, verði talið að um lægra sett
stjómvald sé að ræða.3
Tvískipting stjómsýslunnar í Samkeppnisráð og Samkeppnisstofnun hefur
sætt nokkurri gagnrýni. Var því m.a. haldið fram af hálfu stefnenda í svonefndu
grænmetismáli, sbr. dóm Hæstaréttar frá 30. október 2003 í máli nr. 37/2003,
að seta starfsmanna Samkeppnisstofnunar á fundum Samkeppnisráðs bryti gegn
jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Komst héraðsdómur að þeirri
niðurstöðu að sú tilhögun mála væri í samræmi við áðumefnda 8. gr. sam-
keppnislaga sem og þágildandi 16. gr. reglna samkeppnisyfirvalda um máls-
meðferð nr. 672/1994, sbr. 22. gr. reglna nr. 922/2001 sama efnis. Var sú
niðurstaða staðfest í Hæstarétti. Verður að fallast á þessa niðurstöðu, enda er 11.
gr. stjómsýslulaga ætlað að tryggja að við töku stjórnvaldsákvarðana sé gætt
samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti en ekki að kveða á um hvernig
málsmeðferð skuli háttað á einstökum sviðum stjómsýslunnar. Hins vegar má
gagnrýna þetta fyrirkomulag frá sjónarhóli 6. gr. MSE eins og vikið verður
stuttlega að hér síðar. Einnig er rétt að geta þess að héraðsdómur taldi máls-
meðferðarreglur fyrir Samkeppnisráði að nokkru fara á sveig við viðurkennd
sjónarmið um óhlutdrægni og jafnræði.
Verði frumvarp það sem viðskiptaráðherra hefur kynnt um breytingar á
samkeppnislögum lögfest yrði breyting á þessu fyrirkomulagi. Samkvæmt III.
kafla frumvarpsins yrði Samkeppnisráð lagt niður og tæki stofnun, Sam-
keppniseftirlitið, við hlutverki þess. Reyndar er gert ráð fyrir að stjóm verði yfir
stofnuninni og að bera skuli meiri háttar ákvarðanir undir hana til samþykktar
eða synjunar, sbr. 3. mgr. 5. gr. frumvarpsins.
1 Starfsskilyrði stjómvalda. Forsætisráðuneytið. Reykjavík 1999, bls. 84.
2 Olafur Jóhannesson: Stjómskipun Islands. Hlaðbúð. Reykjavík 1960, bls. 148.
3 UA, mál nr. 1746/1996.
525