Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 73

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 73
ekki til dómstóls í skilningi ákvæðisins.24 Þessi nálgun dómstólanna byggir á misskilningi á því hvemig gildissvið 6. gr. er ákvarðað. I því sambandi skiptir eðli ágreiningsefnisins meginmáli fremur en það hvemig viðkomandi dómstóll (e. tribunal) er samansettur eða hvaða reglur gilda um hann.25 Ef síðamefnda atriðið réði úrslitum væri auðvelt að skjóta sér fram hjá reglum mannréttinda- sáttmálans með því að fela úrskurðarvald í hendur aðila sem ekki teljast til dómstóla í skilningi 6. gr. MSE. Hins vegar er víða í dómaframkvæmd evrópudómstólanna að finna vísbend- ingar um að þeir álíti að sektarákvarðanir vegna brota gegn samkeppnis- reglunum teljist ásökun um refsiverða háttsemi. Má þar fyrst nefna álit Vesterdorfs, aðallögmanns í Polypropylene-málinu. Þar sagði lögmaðurinn að sektirnar hefðu einkenni refsinga (vísaði hann í því sambandi til dóms mann- réttindadómstólsins í Özfú'r^-málinu sem vikið verður að síðar) og það væri mjög mikilvægt að rétturinn (undirréttur Evrópudómstólsins) hefði það að leiðarljósi að gæta þess að réttarstaðan væri þannig að ekki væri með réttu hægt að gagnrýna dóminn með vísan til mannréttindasáttmálans.26 í dómi sínum í Huls-málinu gaf Evrópudómstóllinn mjög sterklega til kynna að hann teldi sektirnar falla undir gildissvið 1. mgr. 6. gr. MSE sem „ásökun um refsiverða háttsemi“. Vísaði rétturinn m.a. til 2. mgr. ákvæðisins sem mælir fyrir um þá grundvallarreglu að maður teljist saklaus uns sekt hans sé sönnuð. Síðan sagði að með vísan til eðlis umræddra brota sem og eðlis og þyngdar sektanna, að ofangreind meginregla gilti um málsmeðferð í samkeppnismálum sem lyki með sektarákvörðunum. Vísaði dómurinn í þessu samhengi til tveggja dóma mannréttindadómstólsins, Öztiirk og Liitz.21 Sé litið til þess að megin- regla 2. mgr. 6. gr. MSE nær einungis til þeirra mála sem falla undir gildissvið greinarinnar sem „refsivert brot“ og þess að Evrópudómstóllinn vísaði til tveggja dóma frá mannréttindadómstólnum, þar sem um refsiverð brot var að ræða, þá virðist óhætt að álykta að með þessu fallist rétturinn sub silentio á að sektarákvarðanir beri að telja til ásökunar um refsiverða háttsemi. Hér má einnig nefna PVC II-niálið þar sem Evrópudómstóllinn lagði mat á hvort málsmeðferðartími teldist hæfilegur og beitti við það viðmiðum sem einungis eru notuð þegar um er að ræða refsiverð brot. Einnig vísaði rétturinn til dóma frá mannréttindadómstólnum sem vörðuðu þagnarrétt, en sú dóma- 24 Sjá t.d. mál 100-103/80 Musique Diffusion Frangaise SA gegn Framkvœmdastjórninni. [1983] ECR 1825, mgr. 11 og mál T-348/94 Enso Espanola gegn Framkvœmdastjórninni. [1998] ECR II- 1875, mgr. 56, 25; D Waelbroeck og D Fosselard: „Should the Decision-Making Power in EC Antitrust Procedure be Left to an Independent Judge?-The Impact of the European Convention of Human Rights on EC Antitrust Procedures". (1994) Yearbook of European Law, bls. 111, 115; IS Forrester: „Modemisation of EC Competition Law“ í BE Hawk (ritstjóri) Annual Proceedings of the Fordham Corporate Law Institute. Juris Publishing Inc. New York 2000, bls. 181, 218. 26 Álit Vesterdorfs aðallögmanns í málum T-l-4/89, T-6-15/89, Rhone Poulenc SA o.jl. gegn Framkvœmdastjórninni. [1991] ECR 11-867, 885-886. 27 Mál C-199/92P Hiils gegn Framkvœmdastjórninni. [1999] ECR 1-4287, mgr. 149-150. 531
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.