Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Blaðsíða 74

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Blaðsíða 74
framkvæmd nær ekki til einkamála.28 Að síðustu má vitna til mjög afdráttar- lausra ummæla Léger, aðallögmanns í Baustahlgewebe-málinu, þar sem hann sagði: It cannot be disputed - and the Commission does not dispute that in the light of the case law of European Court of Human Rights and the opinions of the European Commission of Human Rights, the present case involves a criminal charge.29 Vissulega má finna ósamræmi í dómaframkvæmdinni og má í því sambandi t.d. vísa til Volkswagen-málsins, en þar vitnaði Evrópudómstóllinn til 4. mgr. 15. gr. reglugerðar 17/62 og sagði að sektir í samkeppnismálum væru ekki refsiréttarlegs eðlis.30 Af þessum dómi er engan veginn hægt að ráða hvað tilvitnun til áðumefndrar greinar átti að hafa í för með sér, en hafi ætlunin verið að draga úr kröfum til málsmeðferðar í samkeppnismálum er ljóst, samkvæmt því sem að framan er rakið, að þá er dómstóllinn á hálum ís. 4. SJÁLFSTÆÐUR OG ÓVILHALLUR DÓMSTÓLL 4.1 Almennt Orðið „dómstóll“ í 6. gr. MSE er þýðing á enska og franska orðinu „tribunal“ og er ljóst af því að í ákvæðinu er að finna víðtækari skírskotun en einungis til dómstóla í hefðbundinni merkingu. Hefur það einnig verið staðfest í dómaframkvæmd mannréttindadómstólsins.31 Þar hafa verið að nokkru skýrðar þær kröfur sem gera verður til úrskurðaraðila svo að hægt sé að líta svo á að um sé að ræða dómstól í skilningi ákvæðisins. Til þess að svo sé þarf úrskurðaraðilinn að hafa vald til að úrskurða í máli á grundvelli laga að undangenginni formlegri málsmeðferð.32 Einnig þarf aðilinn að vera óháður löggjafar- og framkvæmdarvaldi sem og auðvitað aðilum málsins.33 í raun réttri er erfitt að greina á milli ákvörðunar um það hvort aðili teljist til dómstóls í 28 Mál C-238/99P, C-244/99P C-245/99P, C-247/99P, C-250/99P-C-252/99P, C-254/99P, Limburgse Vinyl Maatschappij o.fl. gegn Framkvœmdastjórninni. [2002] ECR 1-8375, mgr. 180- 200 og 274-275. Sjá einnig mál C-194/99P Thyssen Stahl AG gegn Framkvæmdastjórninni. Dómur frá 2. október 2003. 29 Alit Léger aðallögmanns í máli C-185/95P Baustalilgewebe gegn Framkvœmdastjórninni [1998] ECR 1-8417, mgr. 31. Ummælin hljóða svo á íslensku: „Það verður ekki dregið í efa - og Framkvæmdastjómin vefengir ekki að með tilliti til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu og álita Mannréttindanefndar Evrópu, telst mál þetta varða ásökunum um refsiverða háttsemi". 30 Mál C-338/OOP Volkswagen AG gegn Framkvœmdastjórninni. Dómur frá 18. september 2003, mgr. 95-97. Sjá einnig mál T-23/99 LR AF1998 gegn Framkvœmdastjórninni. [2002] 5 CMLR 10, mgr. 220. 31 Camphell og Fell gegn Stóra-Bretlandi. Series A Nr 80 [1985] 7 EHRR 165, mgr. 76. 32 Eiríkur Tómasson: Réttlát málsmeðferð fyrir dómi. Bókaútgáfa Orators. Reykjavík 1999, bls. 139. 33 Sjá t.d. Vasilescu gegn Rúmeníu. [1999] 28 EHRR 241, mgr. 41. 532
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.