Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 81

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 81
Although as a general rule the court undertakes a comprehensive review of the question whether or not the conditions for the application of Article 85(1) are met, it is clear that in determining the permissible duration of a non-competition clause incorporated in an agreement for the transfer of an undertaking the Commission has to appraise complex economic matters. The court must therefore limit its review of such an appraisal to verifying whether the relevant procedural rules have been complied with, whether the statement of the reasons for the Decision is adequate, whether the facts have been accurately stated and whether there has been any manifest error of appraisal or a misuse of powers62 (leturbr. höf.). Af tilvitnuðum ummælum má ráða að dómstóllinn telur það meginreglu að hann taki ákvarðanir Framkvæmdastjórnarinnar til gagngerrar endurskoðunar. Hins vegar var sú ákvörðun, sem um var deilt í málinu, einungis tekin til tak- markaðrar endurskoðunar. Astæða þess er sú að um var að ræða stefnumótandi ákvörðun af hálfu Framkvæmdastjómarinnar, þ.e. hvaða afstöðu ætti að taka til samningsákvæða sem meinuðu seljendum fyrirtækja að keppa á sama markaði um tiltekinn tíma.63 Annað er hins vegar upp á teningnum þegar Framkvæmda- stjómin tekur ákvörðun þess efnis að fyrirtæki hafi brotið gegn 81. og/eða 82. gr. Rómarsáttmálans og beitir það sektum samkvæmt 23. gr. reglugerðar nr. 1/2003. í þeim tilvikum tekur undirréttur Evrópudómstólsins til ótakmarkaðrar endurskoðunar bæði hvaða staðreyndir Framkvæmdastjómin leggur tii gmnd- vallar í málinu og eins lögfræðilegt mat hennar á þeim staðreyndum.64 5.3 Dómar í samkeppnismálum I þessum hluta greinarinnar verða raktir allir dómar Hæstaréttar sem gengið hafa og eru til þess fallnir að varpa ljósi á endurskoðunarvald dómstóla í sam- keppnismálum. Einungis tveir þeir síðastnefndu varða sektarákvarðanir, en engu að síður er gagnlegt að skoða hina dómana, sem flestir varða beitingu 17. gr. samkeppnislaga fyrir breytingu með lögum nr. 107/2000, til að fá heild- 62 Mál 42/84 Remia BV o.fl. gegn Framkvœmdastjórninni. [1985] ECR 2545, mgr. 34. Tilvitnuð ummæli hljóða svo á íslensku: „Þrátt fyrir að meginreglan sé sú, að dómstóllinn taki til gagngerrar endurskoðunar hvort skilyrði til þess að beita 1. mgr. 85. gr. séu uppfyllt, er ljóst að mat á heimilaðri lengd samkeppnisákvæðis í samningi um sölu fyrirtækis felur í sér flókið hagfræðilegt mat af hálfu Framkvæmdastjómarinnar. Þar af leiðandi verður dómstóllinn að takmarka endur- skoðun sína á slíku mati við að ganga úr skugga um hvort viðeigandi málsmeðferðarreglum hafi verið fylgt. hvort rökstuðningur fyrir ákvörðuninni sé fullnægjandi, hvort staðreyndir málsins séu réttilega tilgreindar og hvort matið hafi verið bersýnilega rangt eða valdníðsla átt sér stað“. 63 V Tiili og J Vanhamme: „The ‘Power of Appraisal’ (Pouvoir d’Appréciation) of the Commission of the European Communities vis-a-vis the powers of judicial review of the Communities’ Court of Justice and Court of First Instance". Fordham Intemational Law Journal. 22 (1999), bls. 885, 889-890. 64 Mál T-25/95, T-26/95, T-30-32/95, T-34-39/95, T-42-46/95, T-48/95, T-50-65/95, T-68-71/95, T- 87/95, T-88/95, T-103/95 and T-104/95 Cimenteries CBR o.fl. gegn Framkvœmdastjórninni. [2000] ECR 11-491, mgr. 719. Textinn hljóðar svo á ensku: „ ... to undertake an exhaustive review of both the Commission’s substantive findings of fact and its legal appraisal of those facts“. 539
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.