Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 91
A VIÐ OG DREIF
(Dregist hefur úr hömlu að birta fundargerðir síðustu aðalfunda Lögfræð-
ingafélags Islands og ársskýrslur stjórnar. Er þar við ritstjórann einan að
sakast. Nú er bætt úr þessu og birtar fundargerðir aðalfunda áranna 2002,
2003 og 2004 og skýrslur stjórnar fyrir starfsárin 2002-2003 og 2003-2004.)
AÐALFUNDUR LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS 2002
Aðalfundur Lögfræðingafélags íslands 2002 var haldinn á Grand Hótel í
Reykjavík 6. nóvember. Kristján Gunnar Valdimarsson formaður bauð gesti
velkomna og lagði fram tillögu um að Helgi Jóhannesson yrði fundarstjóri. Var
það samþykkt einróma og tók hann við fundarstjóm. Gengið var til áður
auglýstrar dagskrár sem var eftirfarandi:
1. Skýrsla stjómar. Kristján Gunnar Valdimarsson, formaður félagsins, kynnti
skýrsluna og sagði frá starfsemi félagsins undanfarið ár.
2. Endurskoðaðir reikningar Lögfræðingafélags Islands og Tímarits lögfræð-
inga. Helgi I. Jónsson gjaldkeri kynnti reikninga félagsins. Steinunn Guð-
bjartsdóttir framkvæmdastjóri tímaritsins kynnti reikninga þess.
Fundarstjóri opnaði umræðu um reikninga LI og TL. Hann lagði reikninga
LÍ fram til samþykktar og voru þeir samþykktir. Lagði hann þá fram
reikninga TL og voru þeir samþykktir. Tillaga var lögð fram um að árgjald
LÍ yrði áfram kr. 3.500 og var það samþykkt.
3. Kosning stjórnar og varastjómar. Fundarstjóri kynnti tillögu stjómar um
nýja stjóm: Kristján G. Valdimarsson yrði formaður - var samþykkt ein-
róma. Benedikt Bogason varaformaður og var það samþykkt einróma. Aðrir
stjómarmenn voru tilnefndir og kosnir sem meðstjórnendur: Helgi I. Jóns-
son, Steinunn Guðbjartsdóttir, Aslaug Björgvinsdóttir, Jóhann Benediktsson
og Kristján Andri Stefánsson. Varastjórn var kosin: Arnljótur Björnsson
hæstaréttardómari, Eiríkur Tómasson prófessor, Hallvarður Einvarðsson hrl.,
Hrafn Bragason hæstaréttardómari, Jón Steinar Gunnlaugsson hrl., Stefán M.
Stefánsson prófessor og Þór Vilhjálmsson, dómari við EFTA-dómstólinn.
4. Kosning tveggja endurskoðenda. Helgi V. Jónsson hrl. og Kristín Briem hrl.
voru kjörin. Til vara Allan Vagn Magnússon héraðsdómari og Skúli Guð-
mundsson skrifstofustjóri.
5. Önnur mál. Nýkjörinn formaður tók til máls og þakkaði félagsmönnum
stuðninginn.
6. Fundi slitið.
AÐALFUNDUR LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS 2003
Aðalfundur Lögfræðingafélags íslands 2003 var haldinn á Grand Hótel í
Reykjavík 27. nóvember. Kristján Gunnar Valdimarsson, formaður félagsins,
bauð gesti velkomna og lagði fram tillögu um að Arnljótur Björnsson yrði
549