Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Blaðsíða 94

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Blaðsíða 94
2. Skrifstofa, framkvæmdastjórn og einstök verkefni Breytingar urðu á skrifstofu félagsins er Guðrún Hólmsteinsdóttir hætti störfum eftir stuttan tíma í starfi og Eyrún Ingadóttir tók við, en hún starfar einnig fyrir LMFI. Hún hefur starfað síðan í febrúar og skrifstofan er opin frá kl 13-15 daglega. Ráðist var í að uppfæra félagatal LI og safna netföngum félagsmanna. Dýrleif Kristjánsdóttir laganemi var ráðin til að uppfæra félagatalið í desember og janúar og var félagatalið komið í þokkalegt horf eftir þá vinnu. Sömuleiðis hefur verið gerð gangskör að innheimtu ógreiddra félagsgjalda sem hafa því miður verið of mörg. 3. Kúbuferð Stjóm félagsins ákvað að námsferð félagsins að þessu sinni yrði farin til Kúbu og gekk til samninga við Urval Utsýn vegna þessa. I byrjun febrúar var ferðin auglýst meðal félagsmanna og fyrst í stað var gert ráð fyrir u.þ.b. 60 manns í ferðina. Ohætt er að segja að ferðin hafi slegið í gegn meðal félags- manna því þegar mest var voru 140 bókaðir og 40 manns á biðlista eftir að komast með. Svo fór á endanum að 120 manns fóru í ferðina sem var farin 3. til 11. nóvember sl., en þar af voru um 90 lögfræðingar. Við undirbúning ferðarinnar var haft samband við kúbverska lögfræðinga- félagið sem tók beiðni okkar um námskynningu ákaflega vel. Af átta dögum vorum við á námskeiði í fjóra daga fyrir hádegi og fengum ítarlega kynningu á stjómarskrá Kúbu, samskiptum stjómvalda við bandarísk stjómvöld, heim- sóttum dómstóla og lagadeild Háskólans í Havana. Þetta var mjög metnaðarfull og áhugaverð dagskrá. 4. Fræðafundir og niálþing Fræðafundir hafa að jafnaði verið haldnir einu sinni í mánuði yfir vetrar- tímann auk þess sem árlegt málþing félagsins var haldið þann 26. september sl. Fræðafundir voru að þessu sinn sjö, auk ntálþings og jólahádegisverðar, og voru ýmist haldnir sem morgunverðar-, hádegis-, eða kvöldfundir. A fimmta hundrað manns sátu fræðafundina, en auk þess sátu um 100 manns málþing og jóla- hádegisverð. 5. Yfirlit yFir fundi Að loknum aðalfundi 2002 var fræðafundur undir yfirskriftinni: „Sam- keppnishæf samkeppnislög“, en Ari Edwald kynnti skýrslu Samtaka atvinnu- lífsins. Þann 19. nóvember var haldinn fundur um húsleit og voru framsögu- menn Eiríkur Tómasson prófessor og Gunnar Sturluson hrl. Hinn 3. desember var sameiginlegur fræðafundur LI, Lagastofnunar, LMFI og Lex lögmannsstofu og var fundarefnið: „Ný tillaga að yfirtökutilskipun og væntanleg þróun“, en fyrirlesari var Dr. Jan Schan Christensen prófessor í félagarétti við lagadeild Kaupmannahafnarháskóla. Fundur um rafræna stjómsýslu var haldinn 30. janúar. 552
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.