Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 95
Frummælendur voru Páll Hreinsson prófessor og Skúli Mangússon, lektor við
lagadeild HÍ. Fundur um hið svonefnda „lögmannafrumvarp“ var haldinn 27.
febrúar sl. og mættu um 100 manns. Frummælendur voru Eiríkur Tómasson
prófessor, forseti lagadeildar HI, Þórður Gunnarsson, forseti lagadeildar HR, og
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst. Þann 2. apríl
var haldinn fræðafundur þar sem dr. Oddný Mjöll Amardóttir kynnti helstu
niðurstöður doktorsritgerðar sinnar um jafnræðisregluna. „Framtíð höfunda-
réttar og annarra hugverkaréttinda í Evrópu“ var yfirskrift morgunverðarfundar
sem LÍ hélt ásamt Höfundaréttarfélagi Islands og Samtökum um vemd eigna-
réttinda á sviði iðnaðar (SVESI) þann 14. október sl. Gestur jólafundar að þessu
sinni var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri Reykjavíkur.
Málþing Lögfræðingafélags Islands var haldið á Hótel Nordica í Reykjavík
föstudaginn 26. september 2003 í samvinnu við Mannréttindastofnun Háskóla
íslands. Yfirskrift þingsins að þessu sinni var „Mannréttindasáttmáli Evrópu í
50 ár og áhrif hans á íslenskan rétt“, en fyrirlesarar voru Luzius Wildhaber,
forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, Þór Vilhjálmsson, fyrrv. varaforseti
Mannréttindadómstóls Evrópu, Davíð Þór Björgvinsson prófessor, Björg
Thorarensen prófessor og Nina Holst-Christensen, lektor og skrifstofustjóri á
lagaskrifstofu danska dómsmálaráðuneytisins. Rúmlega 100 manns mættu til
þátttöku en málþinginu lauk með kokkteilboði dómsmálaráðuneytisins.
6. Samskipti við systurfélög á Norðurlöndum
Framkvæmdastjórar félaganna á Norðurlöndum hittast árlega og ræða
starfsemi sína og að þessu sinni var komið að því að þeir sæktu Island heim.
Fundurinn var haldinn 12.-15. júní sl. og gekk mjög vel, en skrifstofa LI sá um
alla skipulagningu. Að þessu sinni var lögð áhersla á hvemig félögin miðluðu
upplýsingum til félagsmanna sinna auk þeirra þátta sem snúa að rekstri
skrifstofanna. Það var mjög áhugavert að sjá og heyra hvaða mál voru efst á
baugi í hverju landi, en t.d. hefur finnska lögfræðingafélagið staðið í skipu-
lagsbreytingum og tilvistarkreppu því samfara. Svíum og Finnum var tíðrætt
um kulnun í starfi en það er sífellt að verða algengara að lögfræðingar á besta
aldri hætta í störfum sínum vegna of mikils álags. DJ0F í Danmörku hefur
víðtæka bókaútgáfu og stefnir að því að lögfræðinemar, og reyndar úr fleiri
greinum, verði félagsmenn og verði það alltaf upp frá því. Þeir hafa t.d. 20%
afslátt af bókaútgáfu sinni til félagsmanna, sérstaklega hagstæðar fjölskyldu-
tryggingar, kreditkort og fleira. Þetta var mjög áhugaverður fundur og margt
hægt að læra af nágrannaþjóðum okkar.
7. Útgáfustarfsemi
7.1 Lögfræðingatal
Til stendur að gefa út Lögfræðingatal fyrir árin 1995-2003. Beiðni ritstjómar
um 1.400.000 króna fjárframlag til verksins, sem ætlunin er að endugreiða félag-
553