Ægir - 01.03.1999, Blaðsíða 31
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
r
Islensk veiðarfæri hafa
gjörbreyst á fáum árum
- segirJón Holbergsson, netagerðarmeistari íHafnarfirði
f±að er misjafnt hversu mikið lít-
Jl gerðimar leggja upp úr veiðar-
fœramálunum og á margatt hátt má
líkja þessu við að fólk er misduglegt
að þvo bílana sítta," segir Jón Hol-
bergsson, framkvcemdastjóri og eig-
andi Netagerðar Jóns Holbergssonar í
Hafharfirði. Hann segir þennan árs-
tíma þann annasamasta fyrir fyrir-
tœkið en nú líður að því að bátaflot-
inn skipti yfir á dragnót.
Jón Holbergsson hefur lengi unnið
við netagerð og í hans huga er ljóst að
íslensk veiðarfæri hafa tekið miklum
stakkaskiptum síðustu 10 árin.
„Þau hafa gjörbreyst. Hafró og
Hampiðjan hafa unnið vel saman að
þróunarmálum og sú vinna hefur
skapað okkur litlu körlunum svigrúm
til að vera með og fá verkefni fyrir
okkar getu. Ég nefni sem dæmi að-
komu okkar að þróun á togveiðarfær-
um fyrir humarveiðar. Annað þróunar-
verkefni unnum við með Hampiðj-
unni en þá var um að ræða svokallað
Albatross-troll sem hefur skilað út-
gerðarmönnum mjög góðum árangri
við veiðar á utankvótategundum. Ég
held að menn geri sér ekki nægilega
góða grein fyrir hve mikil vinna liggur
að baki breytingum og þróun á veiðar-
færum. En við skulum hafa í huga að
það má alltaf gera breytingar og gera
betur," segir Jón.
Kvótakerfið hefur haft merkjanleg
áhrif fyrir netagerðina, líkt og flesta
aðra hluti sem snerta sjávarútveginn.
„Kvótinn hefur jafnað sveiflurnar
en á árum áður voru menn í eilífu
kapphlaupi um að ná sem mestu og
sinntu lítið veiðarfæraþættinum sjálf-
ir. Óhöppum með veiðarfæri hefur
líka stórfækkað vegna þess að menn
láta ekki veiðarfæri liggja í sjó eins og
áður var gert," segir Jón Holbergsson,
netagerðarmeistari.
Auðbrekku 32, 200 Kópavogur
Símar:
894 8400
854 8400
Fax:
554 4437
Heimas:
554 6002
MASTO vírasmyrjarinn
þrýstir feitinni inn ívírinn og
óhreinindum út úr honum um leið
og eykur þannig endingu hans.
IVERSEN
vökvaþrýstimagnarar auka aflið í
tjakknum, eftir þínum þörfum,
uþþ í allt að 3000 bar.
ÆGIR 31
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>