Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1999, Side 49

Ægir - 01.03.1999, Side 49
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Viðnámsútreikningar afþessu tagi eru þekktir hjá t.d. Boeing flugvélaverksmiðjunum en fyrir /. Hinriksson segja niðurstöðurnar til um hagkvcemni hleranna. sama og Boeing flugvélaframleiðend- urnir nota. Útreikningar Háskólans sýna okkur skverkraft og viðnám hler- anna í sjó. Hlutfall þessara tveggja stuðla, sem fást við prófanimar, segir okkur hversu hagkvæmir viðkomandi hlerar eru. Við getum auðveldlega búið til hlera sem opna trollin vel, en við verðum alltaf að taka tillit til þess hversu þungir hlerarnir eru í drætti," segir Atli Már. Þegar hagkvæmasta lausn er fundin er stigið næsta skref inni í smiðju J. Hinrikssonar en þá er komið að smíði á módeli, sem síðan er prufað í til- raunatanki. Atli Már segir að sá hluti þróunarferilsins fari oftast fram í Dan- mörku en að loknum tilraununum em smíðaðir hlerar í fullri stærð. Lokaprófanir fara fram um borð í ís- lenskum togskipum og þeir eru reyndir um borð í fleiri en einu skipi og í fleiri en einum túr. „Á þennan hátt höfum við þróað nýjustu gerðir af hlerum J. Hinriksson- ar og náum meiri hagkvæmni með markvissari vinnubrögðum í þróunar- vinnunni," segir Atli Már. Atli jósafatsson, sölu- og markaðsstjóri j. Hinrikssonar ehf. Ný tegund toghlera Eins og áður segir er að ljúka þróunar- ferli á nýrri gerð fjölnota toghlera frá J. Hinrikssyni, hlerum sem hafa fengið spænska heitið „el Cazador", sem þýðir „veiðimaðurinn" á íslensku. Nafnið er þannig til komið að skip- stjórum víða að var gefinn kostur á að fylgjast með prófunum á hlerunum í prufutanki í Danmörku í desember sl. og setja um leið fram tillögu að nafni. Atli Már segir hlerana þróaða upp úr tveimur eldri gerðum toghlera fyrir- tækisins, þ.e. „Concord" v-laga botn- trollshlerunum og „tveggja spoilera" flottrollshlerunum. Nýttir eru kostir flottrollshlerans, sem Atli Már segir vera einn þann kraftmesta á markaðn- um og í „el Cazador" hlerunum koma þeir þannig fram að hægt er að láta hlerana vinna óháða botnsnertingu þar sem aðstæður leyfa. „E1 Cazador" hlerarnir eru hannaðir með það fyrir augum að nýtast bæði til flot- og botn- -------------------Acm 49

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.