Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1999, Side 41

Ægir - 01.03.1999, Side 41
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI „Núna vantar fagmenntaða netagerðarmenn til starfa í greininni og ég sé ekki annað en svo verði í náinni framtíð. Mér vitanlega gengur enginn netagerðarmaður um atvinnu- laus í dag," segir Lárus Pálmason, brautarstjóri hjá FS. reyna að ráða bót á því. Menn velta því jafnvel fyrir sér hvort þetta ofur- efni eigi eftir að koma í stað togvíra og svo gæti hæglega farið því efnið er mun léttara en stál. Þyngdin spilar stórt hlutverk í veiðarfæragerð því með léttara og sterkara efni má stækka veiðarfærin án þess að þyngja þau í drætti," segir Lárus. Netagerðarmenn eru líka hönnuðir Framleiðsluvörur Hampiðjunnar eru glöggt dæmi um vel heppnaða þróun á íslenskum veiðarfærum en Lárus seg- ir að nemendurnir hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja fái í náminu leiðbeiningar í hönnun veiðarfæra. „Við kennum allar forsendur fyrir hönnun veiðarfæra, leiðbeinum um útreikninga, efnisval, verðútreikninga, gerð á fagteikningum og þess háttar. Veiðarfæragerðirnar sjálfar hafa átt rík- an þátt í framþróun veiðarfæra. Hug- myndir um nýjungar koma oft frá sjó- mönnunum sjálfum en netagerðar- menn þurfa þá að hafa þekkingu til að útfæra hugmyndirnar. Þá þekkingu og færni reynum við að byggja upp hjá nemendum okkar." Fjarkennslan verður framfaraspor Fjölbrautaskóli Suðurnesja hefur sótt um að gerast kjarnaskóli í netagerð hér á landi og umsókn þar um bíður nú af- greiðslu í menntamálaráðuneytinu. Þetta þýðir að skólinn verður þróunar- setur í netagerðarnámi og þaðan verð- ur uppbyggingu í netagerðarnámi stýrt. Lárus telur óraunhæft að haidið verði úti deildum í netagerðarnámi víða á landinu enda muni fjarkennsla líkast til leysa þá þörf af hólmi. „Við erum að vinna að því að koma upp fjarkennslu í bóklegum greinum netagerðar og það þýðir að nemendur geta sótt 70-80% námsins í gegnum tölvu heima í héraði. Með fjarkennsl- unni getum við komið mjög til móts við þá sem eru með fjölskyldu og eiga erfitt með að taka sig upp og flytja suður á Suðurnes meðan á bóklega náminu stendur og einnig er það mik- ils virði fyrir veiðarfæraverkstæðin út um landið að missa ekki nemana frá sér þegar mikið er að gera. Fjarkennsl- an er þannig mjög jákvætt skref fyrir uppbyggingu netagerðarnáms á land- inu," segir Lárus Pálmason. , A IÉMÍÍ ¥ev1gíp Jens vefari fann upp dragnótina Dragnótin er þekkt veiðarfæri á íslandi. Sögu hennar má rekja aftur til ársins 1848 en þá byrjaði Jens nokkur Væver að fiska ál og rauð- sprettu í þetta veiðarfæri í Limafirði í Danmörku . Gefin var út árið 1991 bókin " Jens Væver og det jyske ále- vodfiskeri" af Limfjordsmuseet, um Jens og veiðar hans í Limafirði og þar er fjallað um þá aukningu sem varð á fiskiríi í Limafirði eftir að dragnótaveiðar byrjuðu þar. Hægt verður innan tíðar að nálgast upp- lýsingar um frumkvöðuiinn Jens á veraldarvefnum, og upplýsingar um veiðiaðferðir í dragnót þ.e. á slóð Fjölbrautaskóla Suðurnesja á slóð- inni http://www.fss.is Vill leggjast með þessari Gloríu! íslensk troll vekja skrýtnar kenndir hjá erlendum sjómönnum, ekki verður annað sagt. f fréttabréfi Hampiðjunnar segir af kanadískum togara sem veitt hefir með Gloríuflottrolli Hampiðjunnar með góðum árangri. „Eg veit ekki hvort má segja svona á prenti en einn strákanna sagðist vilja leggjast með þessari Gloríu. Ég á við, svona vel líkar honum trollið. En þetta er ungur strákur og vertíðin var löng (hlær).“ ÆGílR 41

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.