Ægir - 01.03.1999, Blaðsíða 8
rangar. Reyndar vorum við hjá SR-
mjöli lítið í kolmunnavinnslunni en
það er ljóst að við höfurn enga aðra
markaði fyrir kolmunnamjöl en
loðnumjölið. Allt er þetta í samkeppni
á mörkuðunum. Menn verða að gera
sér grein fyrir að það verður ekki enda-
laust hægt að taka við hjá fiskimjöls-
verksmiðjunum og hlaða upp birgð-
um. í slíku er ekkert vit," segir Jón
Reynir.
Of mikil taugaveiklun?
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldar-
vinnslunnar hf. í Neskaupstað, telur
full mikla taugaveiklun vegna verð-
lækkunar á fiskimjöli. í sjávarútvegi sé
þekkt að verð gangi upp og niður á til-
tölulega skömmum tíma og að því
hafi fyrirtæki í sjávarútvegi lært að
laga sig.
„Vissulega kemur verðlækkunin til
með að hafa áhrif á síldar- og
kolmunnavertíðina. Ég reikna með að
rneiri birgðir hafi hlaðist upp hjá þeim
fiskimjölsverksmiðjum sem framleiða í
„standard"-mjöl; þeir sem geta fram-
leitt í hágæðamjöl búa við betri
birgðastöðu," segir Björgólfur.
Hann tekur undir að hátt verð hafi
verið borgað fyrir kolmunnann í fyrra
og þar af leiðandi hafi þau fyrirtæki
farið betur út úr vertíðinni þá sem
höfðu yfir að ráða bæði skipum og
verksmiðjum. Björgólfur neitar því
samt að ástandið á mjölmörkuðum
dragi úr sókninni í kolmunnann í
sumar.
„Nei, ég tel að menn hljóti að reyna
allt hvað hægt er að sækja í kolmunn-
ann og byggja upp veiðireynsluna.
Síldarvinnslan hefur yfir að ráða skip-
um sem geta sótt í kolmunna og við
höfum verksmiðjuna. Ég reikna með
að þeir sem eru að gera út skip sem
eiga minni möguleika í kolmunnann
muni síður blanda sér í veiðarnar þeg-
ar aðstæðurnar eru svona."
Rærö þú
öruggu
skipi til
fiskjar ?
RT hf RAFAGNATÆKNI
P.O.BOX 8555-128 REYKJAVÍK
SÍMI 568 7555 FAX 568 7556
<j
Stöðugleikavakt
Varar fljótt við of litlum stöðugleika
*vegna rangrar hleðslu *vegna siglingarstefnu
‘vegna yfirísingar *vegna lítillar kjölfestu
*vegna leka
Nýjar vinnsluaðferðir
á kolmunna
Björgólfur bendir á að aðstæðurnar
eigi að vera hvatning til að finna aðrar
vinnsluaðferðir á kolmunna en
bræðsluna. Reyndar hefur Rannsókn-
arráð ríkisins hafnað umsókn Síld-
arvinnslunnar hf. um styrk til að
kanna möguleika á annarri nýtingu á
kolmunna.
„Þessu erindi var ekki sinnt en ég sé
fyrir mér að fyrirtækin hljóti að reyna
alla möguleika til að þróa nýjar
vinnsluaðferðir. í ástandi eins og nú er
væri gott að geta reynt eitthvað annað
en bræðslu á kolmunnanum."
Veitum alla
veiðarfæraþjónústu
Rækjutroll • Fiskitroll • Dragnætur
Lobnunætur • Sildarnætur
í verslun okkar höfum vift t.d.:
Hondfæravörur • Linuvörur • Netavörur
Blakkir • Ldsa • Belgi • Sjógalla og vettl-
inga • Kebjur • Vira- og víraþjónustu
Rokkhopperþjónusta
NETAVERKSTÆÐI
SUÐURNESJA
BREKKUSTÍG 41 • 260 REYKJANESBÆR
SÍMAR: 421 2270 • 421 2470 • 852 3514
FAX: 421 4301
ÓLI: 897 8370
8 A6IR