Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Side 16
14
sá tími komi brátt, að þér fáið lieimili yðar aftur. Margs
konar félagslíf dafnar nú í liáskólanum, og eru nú allmörg
félög' starfandi, er öll vilja veita vður viðlöku. Á síðasta ári
var karlakór stúdenta stofnaður, og geta þeir vðar, sem
sönggáfu eru gæddir, leitað þangað. Öll þessi réttindi eru
yður veitt af Alþingi og ríkisstjórn og af forráðamönnum
háskólans, er um langt árabil bafa barizt fyrir velferðar-
málum þessarar stofnunar. En öll þessi réttindi eru yður
veitt í því trausti, að þér látið þær vonir rætast, er þjóðin
ber til yðar, að þér gerisl forystumenn í lífi þjóðarinnar,
liver á sinu sviði, er kallið kemur. Á berðum stúdenta bvílir
framtíð íslands á næstu áratugum, og er því mikils virði, að
þér gerið yður einnig ljósar þær skvldur, er á yður hvíla.
Háskólinn vill vaka vfir bæði andlegri og líkamlegri vel-
ferð vðar. Vegna þessa var læknisskoðun stúdenta komið á
fót fyrir nokkrum árum, og er bún framkvæmd tvisvar á
hverjum stúdent með tveggja áía millibili. Á þann liátt mun
stundum reynast mögulegt að stöðva byrjandi sjúkdóm, eink-
um berkla, er allt of margir stúdcntar liafa áðúr orðið að
bráð. Nú hefur verið lögleidd íþróttaskylcla fyrir stúdenta
fyrstu 2 ár námstímans, samkvæmt lögum frá siðasta Al-
þingi. Hún miðar að því að þjálfa líkama yðar á hinuin erfiðu
námsárum, en andleg afköst standa í nánu sambandi við
líkamsþrek. En auk þess miðar liún að því, að skapa liátt-
prúða stúdenta, með fullkomnu valdi vfir sjálfum sér, er
gæta bófs í hvívetna. Sá einn er sannur maður, er kann að
stilla skap sitt og gæta liófst i öllum nautnum. Þér lcánnizt
allir við vanstillingarmenn, er svífast einskis til þess að koma
vilja sínum fram. Þessir menn eru lil í öllum stéttum og' eru
því hættulegri fyrir velferð þjóðfélagsins sem áhrifa þeirra
gætir meir. Það er yðar blutverk, er tima líða, að skapa þann
codex ethicus, er þjóðin geti farið eftir. Það er trú mín og
von, að iþróttaskyldan afnemi drykkjuskap og geri stúdenta
að hófsmönnum i nautn áfengis, en hófsmenn tel ég þá, er
liafa fullkomið vald yfir hinum görótta drykk, ef þeir ann-
ars nevta hans. Háskólinn leggur mikla áherzlu á, að þess-