Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Side 70
68
skólann í Reykjavik veturna 1939—40 og 1940—41. Hinn 7. marz
1942 varði hann ritgerð sína, GerÖir Landnúmabókar (Rvík 1941),
fyrir doktorsnafnbót í heimspeki við Háskóla íslands. Eftir Jón eru
ritdómar í Skírni 1930 og 511 árin síðan, enn fremur ritgerðin Björn
at Ilaugi í Afmælisriti dr. Einars Arnórssonar. Jón hefur gefið út
Útfararráöstöfun Jóns prests l’orvarössonar i Blöndu (VI. 0., 149.--
157. bls.), Annála 1400—1800 frá upphafi IV. bindis og Brandsstaða-
annál (Rvik 1941).
X. LÁTINN HÁSKÓLAKENNARI
Dr. theol. Jón Helgason biskup.
Dr. theol. Jón Helgason, fv. prófessor í guðfræðisdeild liá-
skólans, andaðist að lieimili sínu í Reykjavík 19. marz 1912.
Hann var fæddur í Görðum á Álftanesi 21. júní 1866, og
voru foreldrar lians séra Helgi Hálfdanarson sóknarprestur
þar, síðar lektor Preslaskólans, og lcona lians Þórhildur
Tómasdóttir, prófasts Sæmundssonar að Breiðabólstað. Hann
tók stúdentspróf við lærða skólann í Revkjavik árið 1886 og
sigldi samsumars til Kaupmannahafnar og hóf þar guðfræði-
nám við háskólann. Lauk Iiann prófi í liebresku og beim-
speki næsta ár, í kirkjufeðrafræði 1889 og embættisprófi i
guðfræði 1892 með 1. einkunn. Yeturinn 1892—3 dvaldist
liann í Reykjavík og annaðist þá um skeið kennslu í Presta-
skólanum fyrir föður sinn. Vorið 1893 fór hann aftur til
Danmerkur og var 6 mánuði óvigður aðstoðarprestur í Kulle-
lave prestakalli á Suður-Sjálandi. Snemma árs 1894 tók hann
próf í trúkennslufræði í Kaupmannahöfn og ferðaðist því
næst til Þýzkalands og átti nokkra dvöl í háskólabæjunum
Eidangen og Greifswald. Þá um sumarið, 30. júlí, var hon-
um veitt 1. kénnaraembættið við Prestaskólann, og gegndi
hann því til 30. sept. 1908, er hann var settur forstöðumaður
skólans. Öll þessi ár, nema hið síðasta, flutti liann guðsþjón-
ustur við dómkirkjuna í Reykjavík annan hvern lielgidag og
tók prestsvígslu til þess starfs 12. mai 1895. Vann liann það að
öllu ókeypis.