Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Side 110
108
33. gr. — Háskólinn veitir kennslu lil fyrra hluta prófs i verk-
fræ'ði.
Námsgreinar eru þessar:
1. Stærðfræði.
2. Almenn afifræði.
3. Rúmmyndafræði.
■i. Teiknun.
5. Eðlisfræði.
6. Efnafræði.
7. Jarðfræði.
IV. Próf.
34. gr. — Öll lögskipuð háskólapróf, undirbúningspróf og fullnaðar-
próf skulu að jafnaði haldin í siðasta mánuði kennslumisseris.
Háskólakennarar standa fyrir prófum, hvcr i sinni grein, en deild
ræður fyrirkomulagi prófa sinna.
Munnleg próf skulu haldin i heyranda hljóði.
35. gr. — Stúdentar mega ganga undir próf, þegar þeim sýnist, þó
að því áskildu, að farið sé eftir fyrirmælum þeim, sem einstakar liá-
skóladeildir kunna að hafa sett um það, hvað lengstur eða skemmstur
tími megi líða milli þess, að einstakir hlutar prófs i deildinni eru
teknir, eða hversu löngu námi stúdent þurfi að hafa lokið, áður en
hann má Ijúka tilteknu prófi.
36. gr. — Þeir, sem vilja ganga undir embættispróf. skulu tilkynna
ritara það að minnsta kosti 3 vikum áður en próf byrjar. Um leið og
þeir gefa sig fram, skulu þeir gjalda 20 kr. til háskólasjóðs, og tekur
ritari við gjaldinu. Um leið skulu þeir afhenda ritara gjald fyrir próf-
skirteini, sbr. 46. gr., en það gjald endurgreiðist þeitn ef þeir standast
eigi prófið eða Ijúka þvi ekki.
Stúdent greiði prófgjaldið svo oft sein liann segir sig til embættis-
prófs.
Ilætti stúdenl við að taka próf eftir að hann hefur látið innrita
sig til prófs, á hann heimting á að fá prófgjaldið endurgoldið, hafi
hann gefið sig frám við ritara, áður en prófið byrjar.
Gangi stúdent frá embættisprófi, verður honum ekki endurgoldið
prófgjaldið.
37. gr. — Hafi stúdent byrjað. á prófi, en gengið frá þvi, getur hann
ekki gefið sig fram til prófs að nýju fyrr en eftir eitt misseri.