Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Side 115
113
reglu eigi liæfur til þess að verða læknir, einkum ef talið er, að hætta
muni stafa af honum, geta þeir neitað honum um að ganga undir próf
eða vísað honúm úr deildinni.
Til þess að slík ráðstöfun sé framkvæmd, þurfa a. m. k. þrír kennar-
ar að hafa kennt viðkomandi stúdent og vera allir sammála um óhæfi
hans. Skulu þeir gera grein fyrir ástæðum sínum á deildarfundi, og
verður tillaga þeirra eigi talin samþykkt, nema ailir prófessorar og
dósentar, ásamt föstum kennurum í geðveikralækningum og lyfjafræði
veiti lienni samþykki sitt.
Kennslumálaráðuneytinu skal tilkynnt, þegor slík ráðstöfun er gerð.
B. Próf i tannlækningum.
Áður en stúdent hefur nám í tannlækningum, skal liann hafa lokið
miðhlutaprófi i læknisfræði.
Eftir þriggja missera nám skal liann hafa lokið prófi i tannsmiði.
Prófið er bæði verklegt og' munnlegt.
Eftir fjögurra missera nám skal lokið prófi i öðrum prófgreinum, en
þær eru þessar:
1. Tannfylling, verklegt próf.
2. Krónu- og brúargerð og tannrétting, munnlegt.
3. Tannsjúkdómar, munnlegt.
4. Munnsjúkdómar, munnlegt.
5. Munnsjúkdómaaðgerðir, verklegt.
(i. Tannsjúkdómavitjun, verklegt.
7. Munnsjúkdómavitjun, verklegt.
49. gr. — Próf í laga- og hagfræðisdeild.
A. Embætlispróf i lögfræði.
Embættisprófinu skal skipt í tvennt, fyrra liluta og síðara hluta.
Prófgreinar í fyrra hluta embættisprófs eru þessar:
1. Almenn lögfræði og persónuréttur.
2. Sifja- og erfðaréttur.
3. Stjórnlagafræði.
4. Þjóðarétlur.
5. Réttarsaga.
6. ÞjóðhagfræðL
Prófið er hæði munnlegt og skrifleg i 2. og 3. prófgrein, en aðeins
munnlegt i hinum.
Prófgreinar í siðara liluta embættisprófs eru þessar:
1. Kröfu- og hlutaréttur.
2. Sjó- og félagaréttur.
15