Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1959, Qupperneq 2

Dýraverndarinn - 01.11.1959, Qupperneq 2
„Svífur að haustið og svalviðrið gnýr" Eftir Böðvar Magnússon á Laugarvatni. ÞÁ er nú þetta blessað sumar liðið og haustið gengið í garð. Þetta sumar hefur verið mörgum bóndanum erfitt, einkum þeim, sem hvorki hafa súgþurrkun né nægilegar súrheystættur, að ég nú ekki tali um þeim bændum, sem kunna ekki enn að nota yfir- breiðslur, en slíkt er nú reyndar ófyrirgefanleg vankunnátta eða öllu heldur hirðuleysi og ómennska, því að yfirbreiðslur á hey hafa hjálpað Sunnlendingum ótrúlega vel, síðan þeir komust upp á að nota þær. Þurrkarnir þetta síðastliðið sumar voru svo stuttir, að trúa mín er sú, að mikið væri enn óhirt af töðu, hvað þá af útheyi, ef ekki væru brúkuð þessi hjálpartæki, sem farið er að nota á síðari árum, en við þessi vandræði og úrræða- leysi máttum við, gömlu bændurnir, stríða, og var þá ekki von á góðu með afkomu búpenings í vondum vetrum og vorum, sem oft fylgdust að. Þá þekktist ekki að gefa fóðurbæti með þessum rudda, og fór þá oft illa hjá þeim, sem ekki áttu gömul og góð hey til að gefa með vondu, nýju heyjunum. Hlutskipti bústofns þeirra varð að sjálfsögðu oftast hordauðinn, sem við Islendingar vorum lengi alræmdir fyrir. Páll Zóphóníasson hefur í mörg ár varað bænd- ur við slæmri ásetningu á haustin, svo ekki verð- ur honum um kennt, en því miður hafa orð hans ekki verið nógu vel heyrð. Að vísu eru nú orðið miklu betur fóðraðar skepnur almennt en áður var, og er það alls ekki á nokkurn hátt þakkandi, þar sem öll þau hjálparmeðöl eru nú, sem ekki voru til áður: Yfibreiðslur, súrheysgryfjur og turnar, súgþurrkun víða og ágætur fóðurbætir, sem getur bætt upp vondu heyin, svo að fullu gagni komi. Það sýndi sig bezt veturinn 1955 til 1956. En betur má, ef duga skal. Vanfóðrun er alls ekki útdauð hér á landi. Hennar mun talsvert hafa gætt síðastliðinn vetur og vor. Vanhöld, sem urðu hjá sumum bænum, hygg ég, að stafað hafi að nokkru leyti af vanhirðu og fóðurskorti, þó að sums staðar kæmu til veikindi í sauðfé, bráða- pest o. fl. Þegar á þessum vanhöldum bar í fyrra- vor, eftir eitt hið bezta sumar og ég vil segja ekki meir en meðalvetur, við hverju geta menn þá ekki búizt nú eftir þetta sumar, ef svo kæmi harður vetur? En þetta hefur oft fylgzt að, — það er reynsla, sem ekki verður mótmælt. Þetta þurfa bændur að muna. En fóðurskortur og hordauði mega til að hverfa úr þessu landi, því að hvorugt á sér nokkra afsök- un lengur. Það á bókstaflega. enginn maður að hafa rétt til að eiga skepnur upp á það að hafa ekki nægielgt fóður handa þeim á haustdegi. Hræðilegt er það tjón, sem eigendur bíða, eyða ekki einungis öllu vetrarfóðrinu fyrir ekki neitt, heldur tapa líka skepnunni sjálfri, en ef ekki er um óþokka eða illmenni að ræða, þá eru tapinu þyngri allar þær sálarkvalir, sem við það bætast, þegar menn horfa upp á og umgangast þessa góð- vini sína veika og ósjálfbjarga, unz yfir lýkur. Það er meira en tárum taki fyrir hvern góðan dreng að verða sjónarvottur að öllum þeim kvöi- um, sem skepna Iíður við að bíða þess dapra dauða að verða hungurmorða. Ég hef ekki, frekar en aðrir gamlir menn, kom- izt hjá að taka eftir, hve sumir fjármenn komast af með miklu minni heygjöf en aðrir á sömu bú- jörð. Þetta hygg ég aðallega liggi í tvennu: Að hýsa allar skepnur snemma á haustin eða í fyrstu hretum og flokka fénaðinn vandlega í hús eftir vænleika hans. Á síðari búskaparárum mínum tók ég lömbin strax í fyrstu hretum og sleppti þeim ekki aftur fyrr en þau fóru frá húsi fyrir fullt og allt. Ég háraði þeim ofurlítið, eða sem svaraði einum kýrlaup á 20—25, en beitti þeim alltaf. Þetta lán- aðist mér svo vel, að þessum sið hefði ég haldið, þótt ég hefði átt eftir að búa í hundrað ár. Mér 66 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.