Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1959, Blaðsíða 8

Dýraverndarinn - 01.11.1959, Blaðsíða 8
Arsþing Sambands dýraverndunarfélaga Islands FYRSTA ársþing Sambands dýraverndunarfélaga Islands var haldið í Reykjavík 8. nóvember s.l. Stjórn sambandsins skipuðu: Formaður Þor- björn Jóhannesson, kaupmaður, Reykjavík, rit- ari Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi, s. st., gjaldkeri frú Þorbjörg Bjarnar, s. st., og með- stjórnendur Björn Gunnlaugsson, kaupmaður, s. st., Skúli Sveinsson, lögregluþjónn, s. st., Vagn Jóhannsson, kaupmaður, Silfurtúni, og Þórður Þórðarson, verkstjóri Hafnarfirði. Var öll stjórnin mætt á fundinum nema þeir Vagn Jóhannsson og Skúli Sveinsson, sem báðir boðuðu lögleg forföll. Varamenn þeirra, Tómas Tómasson, framkvæmda- stjóri, Reykjavík, og Björn Jóhannesson, forstjóri, Hafnarfirði, voru báðir mættir. Formaður sambandsins kvaddi Eirík Stefánsson kennara til fundarritara, bauð fulltrúa velkomna til þings og minntist síðan látins félaga, Helga prófasts Konráðssonar á Sauðárkróki, sem hafði verið mjög áhugasamur og þarfur félagi Dýra- verndunarfélags Skagafjarðar. Stóðu fundarmenn úr sætum sínum til virðingar við minningu séra Helga. Þá var skipuð kjörbréfanefnd, og hlutu í henni sæti: Þórður Þórðarson, Ingimar Bogason og Mar- teinn Skaftfells. Fulltrúar voru: Frá Dýraverndunarfélagi Reykjavíkur: Einvarður Hallvarðsson bankafulltrúi, Gottfreð Bernhöft stórkaupmaður, Hilmar Foss dómtúlkur ekki aðeins kærkomin fæða, heldur ljúfur vorboði, sem fyllir loftið klið lífsins. Sú náttúra er ekki líflaus, sem nýtur búsetu haftyrðilsins. Haftyrð- illinn er varpfugl við Grænland allt niður að 78° norðurbreiddar og einnig á Novaya Zemlya. Á vetrum heldur hann suður á höf, allt suður fyrir New York að vestan og suður um Bretlandseyjar að austan. 1 óveðrinu berst hann oft langt fram til dala hér á íslandi. Komið hefur fyrir, að haf- tyrðlar hafa fundizt á götum Reykjavíkur. Þorsteinn Einarsson. og skjalaþýðandi, Marteinn Skaftfells kennari, Ófeigur Ófeigsson læknir, Valdimar Sörensen garðyrkjumaður og frú Viktoría Blöndal. Frá Dýraverndunarfélagi Garðahrepps: Guðmundur Gíslason Hagalín og Óttar Proppé starfsmaður í ameríska sendiráðinu. Frá Dýraverndunarfélagi Hafnarfjarðar: Björn Jóhannesson forstjóri, Jón Sigurgeirsson skrifstofum., Sigurður Þórðarson brunavörður og Þórður Þórðarson verkstjóri. Frá Dýraverndunarfélagi Sauðárkróks: Ingimar Bogason verzlunarmaður. Frá Dýraverndunarfélagi Akureyrar: Eiríkur Stefánsson kennari. Gestir fundarins voru Sigurður E. Hlíðar, fyrr- um yfirdýralæknir, og Bjartmar Guðmundsson, bóndi og alþingismaður á Sandi í Suður-Þingeyjar- sýslu. Stjórn sambandsins gaf ýtarlega skýrslu um starf þess, og hefur flestum þeim málum, sem það hefur haft afskipti af, verið hreyft hér í blað- inu. Ýmsar kærur höfðu borizt sambandinu, og hafði þeim verið fylgt eftir af festu og eins og lög standa til. Þess má sérstaklega geta, að Dýra- læknafélag Islands sendi stjórninni fyrirspurn um samvinnu að aðgerðum til að vinna gegn slysum á dýrum úti á þjóðvegum. Stjórn sambandsins fagnaði þessari beiðni og svaraði málaleituninni, og lagði hún fram tillögu í málinu á þinginu. Stjórnin skýrði mjög ljóslega fjárskipti milli sam- bandsins og hins nýstofnaða Dýraverndunarfélags Reykjavikur. Að loknum þeim formsatriðum, sem framkvæma þurfti á fundum, var endurskoðunar- skrifstofu Björns Steffenssens og Ara Thorlaciusar falið að skipta eignum og sjóðum og setja upp bókhald sambandsins og Dýravemdunarfélags Reykjavíkur. Þegar þessu var lokið, héldu stjórnir sambandsins og Dýraverndunarfélags Reykjavíkur sameiginlegan fund, og voru stjórn félagsins af- hentir sjóðir og helmingur innstæðu Dýravernd- unarfélags Islands í Landsbankanum, að upphæð kr. 30.914.00. Fulltrúar hinna einstöku félaga fluttu skýrslur 72 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.