Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1959, Qupperneq 6

Dýraverndarinn - 01.11.1959, Qupperneq 6
aafmmi BÆRINN Básar í Grímsey er nyrzti bóndabær á íslandi. Vestur af bænum eru lágir klettabakkar með stórgrýttri urð í fjöru. Inn í bakkana gengur grunn vík, sem nefnist Stekkjarvik. Nes kletta- bakkanna, sem teygjast lengst fram til sjávar, sinn hvorum megin víkurinnar, nefnast Litli- og Stóri-Múli. Er sá stóri norðar. Suður af Litla-Múla eru klettabakkarnir það lágir, að auðveld ganga er af bakkanum niður í urðina. Niður bakkahall- ann nærri skreið ég í sumar, lét sem minnst fara fyrir mér og gætti þess, að ekkert hljóð af mínum völdum ryfi lognværð júlíkvöldsins. Ég var fullur eftirvæntingar: Mundi mér nú auðnast að sjá haftyrðla í þessari einu varpstöð þeirra í Evrópu? Eg mjakaði mér með bakkanum á efstu urðar- steinunum til þess að komast sem næst urðinni undir Litla-Múla, án þess að verða séður af haf- tyrðlum, sem vonandi sætu undir múlanum. Allt í einu blasti Litli-Múli og urðin við mér, er ég kom fyrir klettanef — og á klettabrík neðst við urðina lágu þrír haftyrðlar. Hvað þessir fuglar gátu verið ólíkir þeim, sem ég hafði séð upp úr miðjum vetri í stórum breiðum kringum Vest- mannaeyjar eða sjóhrakta í fjörum Eyjanna. Svarta hettan féll nú saman við svart bakið og náði í sveig niður á bringu. Sú spurning rís, hvort Eskimóadrengur að veiða haftyrðil í háf þessi lambhúshetta væri ekki meira í stíl við vet- urinn. En líkast til er þannig litur fuglinn búinn að sumrinu betri felubúningi í svartri urðinni, sem hann að vísu litar hvítskellótta og rauðtaumótta með driti sínu. Hafinu hæfa víst betur hvít eyrna- skjól og fölir vangar og háls. Tveir fuglarnir reistu sig fljótt við komu mína, en teygðu sig þó ekki eins og langvían gerir. Engar höfuðhneigingar höfðu þeir í frammi, svo sem langvíu og stutt- nefju er siður. Kannski var það af því, að ekkert egg lá milli fóta þeirra. Viðlitin voru þó snögg og allt fas fuglanna tveggja hvatlegt og árvakurt. Augnaráðið var hvasst, en samt órótt. En þeir hurfu ekki í holur urðarinnar, þegar ég bærði á mér, en flugu upp og út yfir sjóinn, beygðu í sveig inn yfir urðina, og þannig svifu þeir hring eftir hring. Einhvers staðar að bættist þeim liðs- auki tveggja haftyrðla og innan við þrjá metra var fjarlægðin, þegar þeir komu næst mér á hringfluginu. Vængjablakið var mjög ótt og á fluginu skimuðu fuglarnir ákaft, líkt og þeir slettu til höfðinu. Til eyrna mér barst óvenjulegur klið- ur, léttur en á stundum æsilegur, jafnvel kvein- andi og angurvær. Eyrum mínum virtist kliður- inn mynda hátt, sem ég kveð þannig að: ,,Tirrrr-irr-irr-irr — gi-gi-gi — Tirrrr . . .“ Ég athugaði urðina. Sýnt var, að fletir ofan og utan á einstökum steinum voru oft setnir fugl- um, því að fletirnir voru með dritskán. Mér hafði verið sagt, að urð, þar sem haftyrðlar ættu varp, væri mjög ötuð rauðu driti, sem stafaði af rauð- um lit krabbadýra, sem eru aðal áta fuglsins, en hér kom ég ekki auga á slíkt drit. Ég reyndi að leita uppi hreiður í urðinni, en slíkt er ekkert áhlaupaverk. Ég rakst á geðstirða og úrilla lunda milli og undir steinunum, en engan haftyrðil. Og hvergi gat ég séð á bláleitt tyrðilsegg. Mér virtist urðin nokkuð setin lunda, svo að haftyrðilsvarp væri þarna lítið — kannski búa þarna í þessu 70 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.