Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1923, Qupperneq 9

Dýraverndarinn - 01.02.1923, Qupperneq 9
DÝRAVERNDARINN 5 Fræðslubálkur IV. Apar. Sú skoðun, að aparnir væru „ummyndaöir menn“ var aí- ment ríkjandi hjá náttúrufræSingum fyrri alda, og þaS er sagt að hún lifi enn hjá ýmsum villiþjóðum. Þessi skoSun virSist alveg vera útdauS hjá menningarþjóSum nútímans, hafi hún nokkurn tima átt sjer staS, en önnur alveg gagnstæð komin í staSinn, sem sje sú, aS mennirnir sjeu komnir af öpum, og virSast margir hallast aS henni. ÞaS er meS apana eins og meS flest önnur dýr, sem ekkí cru gædd neinni sjerstakri líkamsfegurS, að þeir eiga heldur litlu láni aS fagna hjá okkur mönnunum, nema að undantekn- um Indverjum, en hjá þeim eru þeir í miklum hávegum hafö- ir. Vjer lítum fyrirlitningaraugum á þá, eins og þeir væru skynlausar skepnur, sem vjer hefðum leyfi til aS fara meS eftir okkar eigin vild. Þessi fyrirlitning vor er sprottin af fá- fræði og þekkingarleysi, eins og svo margt annaS i fari manna. En oss á að lærast aö líta björtum augum eSli allra dýra, hversu ólík sem þau eru oss sjálfum aS því er o s s virSist. Aparnir geta bæði veriö fagrir og ófríSir, en þaS fer eftir því hvaSa tegund þeir tilheyra. LíkamsstærS þeirra er mjög mismunandi, og senr dæmi má nefna, aö Górillaapinn er fult eins hár og fullvaxinn maSur, en aftur á móti er silkiapinn svonefndi á stærS viS íkorna. Sama er aS segja um líkams- byggingu þeirra, hún er einnig mjög mismunandi. Sumir eru digrir, aSrir grannir; sumir hafa langa rófu, aörir stutta og enn aðrir alls enga o. s. frv. HáralagiS er og mjög mismun- andi; sumir eru kafloSnir en aSrir snöggir á hár og gishærö- ir. Venjulegast eru þeir dökkir á lit, en stundum geta þeir verið ljósir og prúðir á hár. Munurinn á innvortis byggingu þeirra er ekki mjög mikill og eiginlega miklu minni en ætla mætti, eftir ytra útliti að dæma. Þó eru höfuSbeinin mjög mismunandi, og fer þaS alt eftir því, hvort niöurandlitiS er stórt eSa lítiö. Sumar apategundir hafa einkar einkennilega vangapoka, sem liggja meSfram vöngunum rjett aftan viS munnvikin.

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.