Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.10.1963, Síða 3

Dýraverndarinn - 01.10.1963, Síða 3
verndunarfélag íslands gæti hlutazt til um við stjórn Kennslukvikmyndasaíns ríkisins, að safnið hefði á boðstólum dýramyndir, innlendar og erlendar, því að kvikmyndir um dýralíf eru mjög vinsælt sýning- arefni í skólum. Sama er að segja um skuggamyndir. Hér mun allri viðleitni yðar til framgangs þessara mála tekið af skilningi og reynt að mæta óskum yðar eftir föngum. Námsskrá fylgir. Helgi Elíasson. Til Dýraverndunarfélags íslands, Reykjavík.“ Hvert byggðarlag á sín vandamál í sambandi við dýr. Mörg slík mál eru tengd atvinnuháttum og mismunandi þéttbýli. Vandamálin eru önnur til sveita en í kaupstöðum, og þau geta jafnvel verið mismunandi í sveitum. Viðhorf nemenda hljóta einnig að verða mismunandi, þar eð sumir þeirra al- ast upp með dýr í kringum sig og læra að hirða um þau með sínum nánustu, en aðrir kynnast dýrum nauða lítið eða jafnvel ekkert, og fer sá hópur ört vaxandi. En þrátt fyrir þetta misræmi eru ýmis meg- inatriði þessara mála svo víðtæk, að þau varða beint eða óbeint hvern einasta einstakling þjóðarinnar, siðferðilegt og samfélagslegt uppeldi hans og þroska — og þá um leið þjóðina alla og framtíð hennar. Hér á eftir verða talin upj) nokkur mál, sem eru nú efst á baugi í starfi dýravernclunarsamtakanna og eru öll meira og minna mikilvæg þjóðarheildinni, ekki aðeins siðferðilega og þá um leið menningar- lega, heldur einnig beint eða óbeint hagrænt, ekki sízt ef litið er til framtíðarinnar. Þessum málum eru svo gerð frekari skil annars staðar í þessu tölu- blaði: 1. Endurskoðun heildarlaga um dýravernd. 2. Strangara og nákvæmara eftirlit allra löggæzlu- yfirvalda með því að lögum og reglum sé hlýtt — og að beitt sé þeim sektar- og refsiákvæðum, sem lög og reglugerðir ákveða, einkum að því er tekur til meiri háttar afbrota eða endurtekinna. Sérstaklega er unnið að: a. Virkara eftirliti í sláturhúsum. b. Strangari gæzlu þess, h\'ers konar tæki eru notuð til flutninga á dýrum á slátrunarstað, í eða úr haga, úr réttum eða við bústaðaskijHi. c. Að framfylgt sé þeim ákvæð- um, sem eru í girðingalögum um eftirlit með girð- ingum og fjarlægingu allra girðinga, sem orðnar eru óþarfar. d. Nákvæmari og virkari framkvæmd forðagæzlu. e. Að gengið sé eftir, að hrossum sé ætl- aður sá húsakostur, sem ákveðinn er í lögum. f. Að hert sé á eftirliti með friðun fugla og eggja. 3. Að lög og reglur um dýraverncl séu sem bezt kynnt og þá ekki sízt það ákvæði heildarlaga um dýravernd, að það er borgaraleg skylda allra, sem sjá dýr nauðulega stödd eða verða vitni að því, að þeim sé misþyrmt, að láta það til sín taka. 4. Að fá í lög leilt, að hross séu ekki flutt til útlanda með öðrum ílutningatækjum en gripaflutn- ingaskijnim eða flugvélum. 5. Að lögbannað sé, að drukkinn maður stjórni liesti. 6. Að eftirfarandi atriði verði framkvæmd til ör- yggis clýrum vegna umferðar á vegurn úti: a. Við vegi og benzínstöðvar verði sett merki, þar sem vak- in sé athygli ökumanna á dýrum, sem við vegina eru. b. Að ákveðnar yfirrekstrarbrautir séu greini- lega merktar. c. Að undir steyjrta þjctðvegi verði gerð göng á þeim stöðum, [nar sem þess er brýn þörf. 7. Endurskoðun laga um girðingar, þar sem hert sé á skylclum eigencla þeirra um viðhald eða fjar- lægingu og bætt gerð rimlahliða. Ennfremur endur- skoðuð úrelt sektarákvæði. 8. Athugað um skynsamlegri og mannúðlegri nytjun hinnar íslenzku hreindýrahjarðar. 9. Endurskoðun laga um eyðingu refa og minka.. 10. Ákvæðum laga um eyðingu veiðibjöllu breytt. 11. Flýtt framkvæmcl laga um varnir gegn olíu- mengun sjávar. 12. Lagt lögbann við sinubrennslu eftir I. maí. 13. Lög um luglavernd og fuglaveiði endurskoðuð. 14. Lög verði sett, sem heimili bæjar- og sveitar- stjórnum bann við búfjárhaldi í kaupstöðum og kauptúnum. 15. Að villiköttum verði útrýmt á virkan og mannúðlegan hátt, og að komið verði á í kaupstöð- um merkingu og skráningu húskatta. 16. Að komið verði ujjjj í kaupstöðum geymslu-, hjúkrunar- og aflífunarstöðvum fyrir hunda, ketti, fugla í búrum og smáfiska í glergeymum. 17. Að tryggja það, að börnum verði kynntur réttur aðbúnaður, lóðrun og hirðing dýra, sem þau hafa eða kjósa að hafa á heimilum sínum eða í næsta nágrenni þeirra. 18. Að börnum verði kennt að umgangast jcannig DÝRAVE R N DARINN 51

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.