Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.10.1963, Blaðsíða 13

Dýraverndarinn - 01.10.1963, Blaðsíða 13
SMALI Fé skal enn til fjalla sótt, fölna grös um dali. Kólnar A heiðum, komdu fljótt, keeri, gamli Smali. Ungan þig til fylgdar fékk, ferðagarþinn snjalla. Okkar för að óskum gekk inn til bldrra fjalla. Fórstu þar i ferðum geyst, fús að skipun minni. Alltaf gat ég á þig treyst cftir fyrstu kynni. Fékkslu oft á fcelur sár, fylgdir þó með gleði, tefldir djarft við trylltar ár, tryggðin ferðum réði. Ákveðinn á undan gekkst, aldrei stefnu misstir. Þegar kaldast fjúkið fékkst, feldinn gráa hristir. Ekki gleymdist afrekið úli i köldum haga, þegar beiðstu veginn við, vinur, i marga daga. Okliar stutta ccviskeið endist skammt til dáða. Manns og hunds er mörkuð leið, moldin kallar báða. Vegir skiljast, vinur minn, en vart mun hynnum lokið, þótt hafi hér i hinzla sinn höfði þinu strokið. Yfir heiðar, ár og hraun áttir göngu brýna. Fátceklega i fylgdarlaun fœrðu stöku mina. Þú crt, Smali, fallinn frá, finnst mér degi halla, vinur horfinn, vöknar brá, vonlaust er að kalla. Þórmundur Erlingsson. „Þá er að minnast dýra jarðar, þau eru mönnun- um gefin. En þar hefur mannkynið enn í dag svarta samvizku. Menn gleyma því svo oft, að dýrin eru systkini okkar með holdi og blóði. Kcerleikurinn á að vera lifsreglan gagnvart þeim eins og mönnun- um. En framkoman og meðferðin á þeirn sem hin- um umkomulausu og máttarminni systkinum vorum er í molum og gleymist oft, því hugsunin er fyrst og síðast bundin við tekjurnar af þeim. Það er rán- yrkjutilfinningin. Og enn í dag, mitt í menningu nútímans, cru dýr ofsótt i sjónum og á landi og i lofti, svo að hcett er við, að sutn þcirra verði upp- rcett.“ DÝRAVERN DARINN 61

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.