Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1975, Qupperneq 8

Dýraverndarinn - 01.02.1975, Qupperneq 8
hefur komið fram að breyta honum í ársrit, en gegn því gilda sömu rök enn og frú Ingunn Einarsdóttir bar fram á fundinum í Laugarnesi 1915, sem endaði með því, að blað- ið var stofnað. Dýraverndarinn þarf að vera tiltækur til varnar og sókn- ar, svo að ekki líði of langt frá því að málin voru efst á baugi, þar til um þau er fjallað í blaðinu, og það er síður en svo, að það nái ekki til þeirra, sem víta þarf. Ég hef sem áður getur orðið þess vís, að þeir, sem það hefur beint að skeytum, hafa orðið þeirra varir, og ég hef hlotið ærið ómjúk orð — einkum á bak, og einu sinni skildist mér, að reyna skyldi fyrir sér um mútur, raunar í kurteislegu formi, freista þess, hvort ekki væri unnt að breyta afstöðu minni í ákveðnu máli á þann hátt, enda hefur víst sú leið oft og tíðum gefizt allvel á ýmsum stöðum. Blaðið þarf að stækka og fjöl- breytni þess að aukast. Mörg mál eru á döfinni, sem krefjast rúms. Ritstjóri þarf að geta aflað sér fjöl- breyttara efnis, einkum þess fróð- leiks um náttúrufræði og náttúru- vernd, sem ósjálfrátt eykur hjá hverjum manni samhug og virð- ingu fyrir gróðraröflum tilverunn- ar, og blaðið þarf að eiga ráð á betri og glæsilegri myndakosti, svo að það geti að einhverju leyti keppt um hylli æsku landsins við hið fjölmarga miður æskilega, sem henni stendur til boða. Málflutn- ingur þess þarf að vera reistur á gildum rökum þekkingar, hag- kvæmni og menningar, og það þyrfti að hafa þau fjárráð, að það gæti launað liðsinni sérfróðum mönnum á þessum eða hinum vettvangi." Margt fleira fróðlegt og skemmtilegt segir Guðmundur G. Hagalín um fimmtugsafmæli blaðs- ins og enn ritstýrir hann því næstu 7 árin, eða til ársins 1972, að hann sagði upp ritstjórnarstörfunum. Dýraverndarinn hafði stækkað nokkuð í höndum Guðmundar. Voru blöðin í hans tíð 6 á ári og hvert blað með 15 tvídálka les- málssíðum, auk kápu og auglýs- inga. — Var nú stjórn S. D. í. nokkur vandi á höndum er rit- stjóralaust var orðið. Auglýsingar eftir góðum manni í þetta starf báru ekki árangur. Hljóp þá undir bagga þáverandi ritari sambands- stjórnar, Jón Kr. Gunnarsson, fram- kvæmdarstjóri Sædýrasafnsins í Hafnarfirði. — Tók hann að sér að sjá um árganginn 1972. -—■ Eftirtaldir menn hafa verið rit- stjórar blaðsins: 1. Jón Þórarinsson, 11 ár (rúml.). 2. Grétar Fells, 2l/2 ár (rúmlega). 3. Einar Þorkellsson, 1 ár (tæpl.). 4. Einar E. Sæmundssen, 10 ár (rúmlega). 5. Jón Pálsson, 1 ár (tæplega). 6. Símon Jóh. Agústsson, 1 ár (tæplega). 7. Páll Steingrímsson, 5 ár. 8. Sigurður Helgason, 8 ár. 9. Guðm. G. Hagalín, 17 ár. 10. Jón Kr. Gunnarsson, 1 ár. 11. Gauti Hannesson og Jórunn Sörensen, 2 ár. Þá skulum við líta á hvernig háttað hefur verið stærð og verði blaðsins á þessu 60 ára tímabili: Lesmál Dýraverndarans og verð: (Raðtölur árganganna og ártölin eru öll að báðum meðtöldum); 8 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.