Dýraverndarinn - 01.02.1975, Blaðsíða 28
Sólskríkjusjóðurinn
í harðindakaflanum í janúar nú
í vetur, voru það margir, sem
gáfu smáfuglunum korn og fleira í
sarpinn. - Pökkunarverksmiðjan
„Katla", sem sá um að pakka inn
Miló-kornið frá Sólskríkjusjóði,
varð uppiskroppa með korn, þegar
liðin var u. þ. b. vika af febrúar.
Þetta kom þó ekki verulega að
sök fyrir fuglana, því að einmitt
um það leiti kom hlákan og varð
auð jörðin víða hér sunnanlands
að minnsta kosti. - Núna (20. 2.)
munu nokkrar byrðir fyrir hendi
hjá „Kötlu". -
Formaður Dýraverndunarfélags
Reykjavíkur, Marteinn Skaftfells
segir svo um sjóðinn:
„Sólskríkjusjóður Þorsteins og
Guðrúnar Erlings fóðrar vafalaust
nokkra tugi þúsunda smáfugla á
hverjum vetri. Frá okt. s. 1., þar
til nú, mun sjóðurinn hafa miðlað
um 60 þúsundum í gjafakorni. En
það er því miður, aðeins brot af
þörfinni. En áreiðanlegt er, að hefði
sjóðurinn ekki verið stofnaður,
væru þeir færri, er sinna smáfugl-
inum. í rauninni eru þau Þorsteinn
og Guðrún, enn að gefa smáfuglin-
um, eins og þau ávallt gerðu. Og
hefði Þorsteinn ekki verið slíkur
dýravinur sem hann var, og mestur
vinur minnstu smælingjanna, smá-
fuglanna, hefði sjóðurinn aldrei
verið stofnaður. Erlingur sonur
þeirraer nú, góðu heilli, form.
sjóðsins. Og honum er í blóð borin
umhyggja fyrir dýrum. Og hann
er driffjöður í allri starfsemi sjóðs-
ins. Tekjur sjóðsins þyrftu að
vera svo miklar, að unnt væri að
miðla nokkrum hundruðum sekkja
gefins á ári. Hópurinn, sem fóðra
þarf er stór. Gleymum honum
ekki, er snjórinn bannar honum
jörð.
Talið er að smáfuglarnir þurfi
jafnvel 3svar sinnum meira fóður
daglega í vetrarkuldum en að
surnri, til að halda nægilegum
líkamshita, til varnar gegn kuld-
anum. Og vafalaust fellur fjöldi
smáfugla að vetrinum, vegna þess
að þá VANTAR NÆGÐ FÓÐ-
URS til að „kynda ofninn sinn".
Tekjur Sólskríkjusjóðs eru eink-
um tekjur af útgáfu og sölu jóla-
korta. Þá berast og góðar gjafir
til sjóðsins af og til og geta má
þess, að ein, sérlega rausnarleg gjöf,
barst sjóðnum nú fyrir stuttu, en
það voru 100 þús. kr. frá Ásbirni
Ólafssyni stórkaupmanni. - Bæði
honum og öðrum, sem sent hafa
gjafir er kærlega þakkað. -
Kort og myndir hafa verið gefin
út til ágóða fyrir sjóðinn, og nú
einnig „silfursólskríkjan", barm-
merki, sem við þurfum að gera
vinsælt. Driffjöðrin í starfsemi
sjóðsins er form. hanns, Erlingur
Þorsteinsson. Það er ekki ofsagt.
Á 15 ára ferli félagsins, fer að
sjálfsögðu ekki hjá því, að eitthvað
hafi þokast í áttina, í dýravernd-
armálum hér í borginni, almennt
skoðað. En skelfing finnst mér það
samt vera lítið. Og langt neðan við
það að hreykja sér af. Það er mikið
eftir óunnið. Og svo mun, því mið-
ur, líklega lengi verða.
Það er hryggilegt, að dýravernd-
arfélaga skuli vera þörf. Vinna
þarf að því að gera þau óþörf.
M. Sk.
DÝRAVERNDARINN
28