Dýraverndarinn - 01.02.1975, Side 10
Arsskýrsla
Sambands dýraverndunarfélaga Islands starfsárið 1974
Á aðalfundi sambandsins 1973
voru eftirtaldir menn kosnir í
stjórn, og á fyrsta stjórnarfundi
skipti stjórnin með sér verkum,
þannig:
Jórunn Sörensen, formaður.
Gunnar Steinsson, varaformaður.
Ólafur Jónsson, ritari.
Hilmar Norðfjörð, gjaldkeri.
Gauti Hannesson, meðstjórnandi.
Sigurður Jónsson, meðstjórnandi.
Ásgeir Hannes Eiríksson, með-
stjórnandi.
V'aramenn:
Paula Sörensen, Kristleifur Ein-
arsson, Skúli Ólafsson, Gunnlaugur
Skúlason.
Stjórnarfundir.
Á kjörtímabilinu voru haldnir 9
bókaðir stjórnarfundir. Voru vara-
menn ætíð boðaðir á þá jafnt og
aðrir stjórnarmenn, þannig að allir
tóku fullan þátt í störfum sam-
bandsins. Að sjálfsögðu var svo
símasamband á milli stjórnarinnar
eins og þurfa þótti og einnig var
hist óformlega, bæði til viðræðu og
vinnu, eins og t. d. fyrir Dag dýr-
anna.
Hundabú Búnaðarfélags íslands að
Leirtjörn.
Stjórnin fór tvær skoðunarferðir
að búinu í byrjun árs. Aðbúnaður
hundanna var athugaður, bæði nýju
kofarnir sem komnir eru fyrir þá
og annað sem lagast hefur í með-
ferðinni á þeim. En einnig var
athugað það sem enn er ófært í
meðferð hundanna og aðbúnaði.
Það verður ekki rakið hér, en stjórn
Búnaðarfélags íslands svo og Dýra-
verndunarnefnd ríkisins var ritað
ýtarlegt bréf um málið. Yfirdýra-
læknir sagði í viðtali við Sigríði
Ásgeirsdóttur fulltrúa S. D. í. i
dýraverndunarnefndinni að hunda-
búið yrði flutt á betri stað og væri
hann að útvega þann stað. Stjórnin
tók myndir á staðnum, bæði af
botnfrosnum vatnsílátum og gadd-
freðnu heilum svínshöfðunum og
rifjunum, sem dýrin höfðu til að
nærast á.
Styrkur til dýrabjúkrunarkonunnar.
Svo sem frá var skýrt í síðustu
skýrslu hefur ung stúlka hafið nám
í dýrahjúkrun í Englandi. Stjórnin
ritaði Menntamálaráðuneytinu og
sótti um styrk fyrir hana til náms-
ins, sem er mjög kostnaðarsamt.
Fékkst nokkur styrkur, eða 50 þús.
krónur, sem komu sér að sjálfsögðu
mjög vel fyrir stúlkuna, en einnig
er mikilsverð sú viðurkenning á
náminu, sem í þessari styrkveitingu
fellst. Einnig ritaði stjórnin all-
mörg bréf til Englands, bæði til
R. S. P. C. A. og Royal College of
Veternary Surgeon út af umsókn
hennar um skólavist í Englandi.
Endurskoðun laga um dýr og
dýravernd.
í skipunarbréfi Dýraverndunar-
nefndar ríkisins er henni ætlað það
verkefni að endurskoða íslensk lög
og reglugerðir um dýravernd. Þetta
verkefni var gefið í samráði við
stjórn S. D. í. Hefur stjórnin unn-
ið að því að afla allra laga og reglu-
gerða um dýravernd, dýrahald og
annað það er varðar dýr á íslandi
vilt eða tamin. Unnið er að endur-
skoðun þessara laga og mun stjórn-
in gera tillögur um þær breytingar
sem hún telur nauðsynlegar. Er
þetta gert í samráði við fulltrúa
sambandsins í dýraverndunarnefnd-
inni Sigríði Ásgeirsdóttur lögfræð-
ing. Þetta er rnikið verk og sein-
unnið og er ekki hægt að segja
hvenær sér fyrir endann á því, en
þar mun verða þungur á metunum
sá áhugi sem dýraverndunarnefndin
sýnir á sínu starfi.
Hundavinafélag í
V estmannaeyjum.
í janúarmánuði s. 1. var stofnað
hundavinafélag í Vestmannaeyjum.
Eftir beiðni Guðmundar Hannes-
sonar ritara Hundavinafélags ís-
lands, skrifaði stjórnin forsvars-
manni þessa nýja félags og sendi
gögn þau er um var beðið, en
það var samþykkt hreppsnefndar
Garðahrepps varðandi hundahald.
Einnig var gerð grein fyrir því að
félagið gæti gerst aðili að sam-
bandinu. Félagar í þessu félagi eru
um 50.
Rœtt um dýraverndunarfélag
á Suðwrnesjum.
Sigtryggur Árnason yfirlögreglu-
þjónn í Keflavík hafði samband
10
DÝRAVERNDARINN