Dýraverndarinn - 01.02.1975, Side 15

Dýraverndarinn - 01.02.1975, Side 15
haldinn var í nóvember s. 1. sem fulltrúi S. D. í. Dagur dýranna 1974. Dagur dýranna 1974 var sunnu- daginn 15. september. Er það í annað sinn sem Dagur dýranna er haldinn hátíðlegur hér á landi. Þar sem íslendingar halda nú upp á ellefu hundruð ára búsetu sína í landinu ákvað stjórn S. D. í. að Dagur dýranna að þessu sinni skyldi helgaður veru húsdýranna hér í ellefu aldir og sambýli þeirra við okkur íslendinga. Mikil vinna var lögð í undir- búning dagsins, þannig að hann mætti takast sem best. Stjórnin ritaði herra Sigurbirni Einarssyni biskupi bréf og bað hann þess að hann færi þess á leit við presta landsins að þeir minnt- ust dýranna og nauðsynlegri vernd- un þeirra við guðþjónustur í kirkj- um landsins þennan umrædda sunnudag. Einnig fór formaður á fund biskups og ræddi þessi mál við hann. Varð hann mjög greið- lega við þessari ósk og var dýranna minnst við guðþjónustur um land allt þennan dag. Stjórnin ritaði einnig útvarps- raði og fór fram á að fá að hafa dagskrá í útvarpinu í tilefni dags- Jns. Ræddi formaður þetta einnig við dagskrárstjóra persónulega. Þetta mál var mjög auðsótt og var síðan unnið að gerð dagskrár- mnar í samvinnu við Baldur Pálma- son. Til þess að dagskráin mótað- lst af tilefni dagsins var Guð- mundur Jósafatsson frá Brandsstöð- mn fenginn til að flytja erindi um húsdýrin okkar í ellefu hundruð ár. Einnig talaði Árni Björnsson þjóð- háttafræðingur um dýrin og þjóð- trúna en eins og allir vita er mikil þjóðtrú bundin húsdýrunum og dýraverndarinn margir skrítnir og merkilegir siðir. Baldur Pálmason og Pétur Péturs- son lásu upp úr ýmsum bókum um húsdýrin og á milli atriða var flutt íslensk tónlist og sönglög um húsdýrin. Kynningar annaðist for- maður sambandsins og flutti hann einnig inngangsorð og minntist líka sextíu ára afmælis sambands- ins á þessu ári. Dagskráin stóð í 80 mínútur. Þar sem fjárhagur sambandsins er mjög bágborinn var mikil áhersla lögð á merkjasölu til fjár- öflunar. Merkið teiknaði listamað- urinn Baltasar og táknar það dýr lofts láðs og lagar. Stendur sam- bandið í mikilli þakkarskuld við listamanninn fyrir þetta framlag hans. Stjórnin, svo og fjölmargir sjálfboðaliðar unnu mikið starf við að setja títuprjóna í merkin og telja þau í poka þannig að hægara yrði að afgreiða þau til sölubarn- anna. Merkin voru seld í Reykja- vík, Hafnarfirði, Kópavogi og Garðahreppi, svo og á fjórum stöð- um úti á landi, á Akureyri, ísafirði, Akranesi og Keflavík. Skólastjórar í viðkomandi skólum úti á landi sáu um dreifingu merkjanna þar, en hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu skiptu stjórnarmenn og aðrir sjálf- boðaliðar sér á þá skóla sem merkj- unum var úthlutað frá. Merkjasalan gekk mjög vel og var mikill fengur að fá þá peninga í rýran rekstrar- sjóð sambandsins. Stjórnin talaði við landsbókavörð og fór þess á leit við hann að sett yrði upp sýning á íslenskum bók- um um húsdýrin. Var því erindi mjög vel tekið og unnu bókaverðir landsbókasafnsins að uppsetningu þessarar sýningar. Stjórn S. D. í. þakkar öllum þeim er á einhvern hátt aðstoðuðu við þennan Dag dýranna. Stjórnin hefur nú ákveðið að þriðji sunnudagur í september skuli ætíð vera Dagur dýranna og hefur nú þegar verið talað við fulltrúa dómsmálaráðuneytisins að sá dagur verði ætíð frátekinn fyrir merkja- sölu fyrir S. D. í. Til þessa ráðs er gripið, því mjög erfitt er að fá hentugan dag til merkjasölu, sem ekki er pantaður af öðrum. Dýraverndarinn. Áætlað var að koma út fjórum blöðum af Dýraverndaranum á þessu ári. Vegna prentaraverkfalls- ins fyrri hluta árs og mikillar seinkunnar á útkomu fyrsta blaðs- ins vegna þess, var gripið til þess ráðs að auka við efni blaðsins og láta 1. og 2. tölublað koma út í einu riti. Eftir prentaraverkfallið hækkaði allur prentunarkostnaður svo gífurlega að stjórnin sá að ekki var mögulegt að koma þeim tveim blöðum sem eftir voru út nema saman í einu riti. Það blað er nú nýkomið út. Lögð hefur verið áhersla á að flytja vandað efni og fjölbreitt eftir því sem við hefur verið komið. Jórunn Sörensen og Gauti Hannesson hafa í samein- ingu unnið við blaðið og hafa þau gert það án þess að þiggja nokkur ritlaun eða aðra þóknun fyrir. Hilmar Norðfjörð hefur séð um auglýsingar. Gjafir til sambandsins og dýraspítalans. Gjafir til sambandsins hafa verið margar. Einnig hafa borist nokkur áheit. Börn hafa haldið hlutaveltur og þannig hafa þau safnað fé, sem þau ætla dýraspítalanum. Stjórnin þakkar þeim innilega er á þennan hátt hafa létt störf sambandsins. 15

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.