Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1975, Qupperneq 21

Dýraverndarinn - 01.02.1975, Qupperneq 21
Lítið eitt um svefn fuglanna Fyrir mörgum árum var ég að vaðdraga bát eftir Hvítá í Borgar- firði. Kvöldsett var orðið, og kald- ur vindur blés af norðri. Ég var norðan megin árinnar, rétt á móti Teningslæknum, sem er á landa- merkjum Þingness og Hvítár- bakka. Er ég nú var staddur þarna, sá ég, að á kletti í ánni, sem er kallað- ur Skurðsholt, lá litfagur fugl. Þekkti ég þegar, að þetta var litla toppönd, karlfugl. í fyrstu hélt ég, að fuglinn væri dauður, en er ég var kominn svo nærri, að hann lá við fætur mína, sá ég, að nefið var undir vængnum og augun opin. Ég horfði litla stund á þennan litfagra fugl. Hárauð augun blik- uðu eins og rúbínsteinar, en eigi gat ég séð augun hreyfast. Svo beygði ég mig niður og ætlaði að taka fuglinn. En um leið og ég snerti bak hans, vaknaði hann, sparn við fótum og flaug í burtu hröðum vængjatökum. Þessi toppandarsteggur varð til að vekja áhuga minn á svefni fugl- anna. Álftir stinga oft höfði undir væng og sofa standandi. En aldrei hef ég séð álftahóp, þar sem allir fuglarnir sváfu í einu. Stóra grágæs sefur á landi eða stendur í örgrunnu vatni. Þær hafa líka vörð eða verði, og oft má sjá fullorðnu fuglana vaka yfir börn- Um sínum. Ungfuglinn má þekkja a því, að hann hefur enga svarta ^VUAVERNDARINN díla á bringu eða kviði og fæturnir eru móleitari. En stóra grágæs sef- ur oft liggjandi með höfuð undir væng. Stóra grágæs hefur mörgum fuglum fremur fasta svefnstaði. Hún kemur þangað eftir að kvöld- sett er orðið, flýgur hringflug yfir svefnstaðnum og nálgast svo jörð- ina með undarlegum vængjaburði. Ef hún fær að vera í friði, heldur hún tryggð við svefnstaði sína ár- um saman. Svo hefur það verið hér. Stokkandir og fleiri andategund- ir sofa oft á vatni, en þó stundum á landi. Eitt sinn fann ég við Flókadalsá stóra fjölskyldu, sem svaf undir árbakkanum. Ég horfði á þær góða stund og vakti þær ekki. í annað sinn fann ég steinsofandi Sjtokkandarstegg. Þá var ég á gangi með læknum heima ásamt Jóni Hannessyni bónda í Deildartungu. í fyrstu héldum við, að fuglinn væri veikur, því að hann flaug ekki, þó að hann væri rétt hjá fótum okkar. En svo ýtti ég við honum með staf mínum, og við sáum hann vakna og fljúga í burtu. Hrafnar sofa líklega alltaf í klettum. Þeir fljúga þangað áður en aldimmt er orðið. Tvo svefn- staði þeirra þekki ég, en annan þeirra þekki ég, en annan þeirra hafa þeir líklega yfirgefið vegna þess, að ég kom þangað of oft og raskaði næturró þeirra. Það var í Langholtsholtum. Hrafnagarg er ekki fagurt, en 21

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.