Dýraverndarinn - 01.02.1975, Page 26

Dýraverndarinn - 01.02.1975, Page 26
1 sér hálfa leiS umhverfis hnöttinn, og nú skulum við á einu augna- bliki fara þá löngu leið frá Gala- pagoseyjum til íslands, sögueyjar- innar í norðurhöfum. En ef við höfum gert gælur við þá hugmynd, að norður þar sé viðhorf manna til dýranna allt annað og betra en á suðurhvelinu, er hætt við að við verðum fyrir vonbrigðum. Ég hef áður minnzt á þátttöku okkar íslendinga í því, að útrýma geirfuglinum, en málið er miklu víðtækara. Að vísu höfum við ekki beinlínis unnið að algerri útrým- ingu annara dýrategunda, en óneit- anlega höggvið djúp skörð í raðir þeirra og er haförninn þar augljós- asta dæmið. Ég hvarfla nú huganum örlítið aftur í tímann og minnist þeirra ára, þegar ég dvaldi í dreifbýlinu. Mér fannst þá og ávallt síðan að hver árstíð ætti sína sérstöku feg- urð og víst er að haustið, með sín- um hljóðu náttskuggum og marg- lita gróðurfölva undir dvínandi dagsbirtu, hafði jafnan djúpstæð áhrif á mig. Þá komu gæsirnar í fríðum fylkingum niður með sunn- lenzku stóránum og áttu framund- an langa og hættulega för yfir úi- hafið. Kvak þeirra hljómaði unaðs- lega í eyrum mér og einhvern veg- 26 inn fannst mér það tákna kveðju frá sumrinu, sem var að líða. Ed hafi ég hugsað mér að njóta þessara radda, sem féllu svo vel inn í haust- kyrrðina, þá skjátlaðist mér hörmu- lega, því brátt rnátti sjá gljáfægða bíla koma brunandi eftir þjóðveg- inum og þar með var friðurinn rofinn. Dynjandi skothveliir kváðu við og gæsirnar lágu í blóði sínu, ýmist dauðar eða helsærðar. Nokkrar voru „aðeins" vængbrotn- ar og reyndu, í dauðadæmdri von um að bjarga lífi sínu, að hlaupa brott frá kvölurum sínum. Þau viðbrögð gátu aðeins endað á einn veg. Svo mikil var frekja þessara manna og svo mikið drápsæði greip þá, að dæmi veit ég til þess, að þeir óku heim að bæ einum og skutu aligæs í hlaðvarpanum. Snemma á yfirstandandi vetri voru í fjölmiðlum flutt hlýleg hvatningarorð til verðandi rjúpna- bana, þess efnis, að klæða sig og nesta vel. Þessi umhyggja var nán- ast hlæileg, því að þessir menn höfðu að sjálfsögðu það eitt í huga að drepa saklausa fugla, sem börð- ust harðri baráttu fyrir lífi sínu í köldum örmum vetrarins. Göfugri var hugsunarhátturinn ekki. Eitt af dagblöðunum birti í fyrrasumar viðtal við einhvern lax- veiðimann, undir svohljóðandi yfir- skrift: „Laxveiðin veitir unað og hvíld". Svo mörg voru þau orð. Hvað er það svo við laxveiðina, sem veitir mönnum unað? Jú, ein- faldlega það að horfa á dauðastríð dýrsins, auk þess sem matarvonin grípur þarna inn í og eykur við ánægjuna. Ymsar ómannúðlegar drápsað- ferðir hafa tíðkast hér á landi fram til þessa og nægir að nefna hinar viðbjóðslegu flekaveiðar því til sönnunar. Aðeins örfá ár eru síðan að sú glæpsamlega veiðiaðferð var bönnuð með lögum og sýnir það glögglega hve svifaseinir valdhafar eru þegar um dýraverndun er að ræða. Ég hef hér að framan nær ein- göngu minnzt á landdýrin, spen- dýr og fugla. En dýr hafsins verða þó engu síður fyrir barðinu á manninumoger í því sambandi skylt að geta þess, að sumar teg- undir hvala eru þegar í útrýmingar- hættu. Og í heild skipta þær dýra- tegundir hundruðum, sem maður- inn er á góðri leið með að gereyða. Hugsanlegt er, og raunar líklegt, að sá tími sé eigi mjög langt fram- undan, að maðurinn tortími sjálf- um sér. Nú ræður hann yfir gereyð- ingarvopnum, sem gera honum slíkt mögulegt. Og ótrúlegt er að þau vopn verði ekki einhvern tíma notuð. Þá verða ný þáttaskil í sögu lífsins og enginn veit hvaða ætt- bálkur dýra hefst næst til valda á jörðinni. Hitt er víst, að framvinda lífs í einhverri mynd verður ekki p stöðvuð, því að lífsmeiðinn mikla - hinn skapandi mátt náttúrunnar - megnar maðurinn ekki að deyða. Eyþór Erlendsson, frá Helgastöðum. DÝRAVERNDARINN I

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.