Dýraverndarinn - 01.02.1975, Page 32

Dýraverndarinn - 01.02.1975, Page 32
Björgunarstarf Björgunarmennirnir Örn Fransson og Ólafur Jón Kristjánsson með skjól- stœðing þeirra, þrastarungann, og Axel og Svavar Hilmarssynir. Þeir standa nndir trénu, þar sem kötturinn komst fyrst í hreiðrið. - Ljósm. RAX. Eftirfarandi frásögn birtist í Morgunblaðinu sl. sumar, um björg- un á Sólvallagötunni. Frækileg björgun hefur að und- anförnu verið unnin á Sólvallagöt- unni. Björgunarsveitin, sem saman- stendur af fjórum drengjum, hefur gengið vasklega fram í að bjarga þrastarunga frá óvinunum — að- vífandi köttum. Björgunarstarfið hófst snemma einn morguninn, þegar Orn Frans- son var að klæða sig og heyrði mik- il læti úti í garðinum. Þar var í háu tré þrastarhreiður með tveimur ungum. Nú hafði kötturinn þegar náð í og etið annan þeirra, en hinn lá í grasinu. Orn þaut út og hrifsaði ungann frá óvininum. Hann fór með hann inn og setti hann í fat. Um hádegið kom hann hlaup- andi heim úr vinnunni til að gefa honum eitthvað að borða. Hann og mamma hans settu fatið líka út á stétt og þá kom þrastarmamma og þrastapabbi og færðu unganum orma, meðan mannfólkið gætti þess, að kötturinn kæmist ekki að honum. Síðan var hann geymdur inni í kjallaranum. En meðan Orn og mamma hans voru í vinnunni, sá vinur Arnar, Ólafur Jón Kristjánsson, einu sinni, hvar annar köttur var að troða sér inn um gat, til að komast inn til ungans. Hann rétt náði í skottið á kettinum og dró hann út og fór svo að aðgæta fuglinn. Hann var lamaður á fæti eða fótbrotinn, og þeir félagarnir fóru með hann til 32 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.