Dýraverndarinn - 01.02.1975, Page 34
Fálkinn,
er sagaður út úr krossviðarplötu,
sem er 6 mm á þykkt. Tapparnir
að neðan, merktir x, ganga niður í
pall, sem smíða þarf sérstaklega og
er best að þessi pallur sé úr 8 mm
þykku efni. - Límið fálkann fastan
á pallinn með því að bera grip-
lím á tappana, áður en þeim er
stungið niður í götin tvö á pallin-
um. - Mála mætti grasið ofan á
klettinum með mildum vatnslitum
(ekki þekjulitum) t. d. gul-grænt. -
G. H.
Leiðréttingar
Tvær prentvillur, sem voru í síð-
asta blaði þarf að leiðrétta. Sú
fyrri er í vísu Jónasar Hallgríms-
sonar í greininni Bernskuminning-
ar úr Breiðafjarðareyjum. Rétt er
vísan þannig:
Þar er svo dúnað í dúni,
að Djánkinn liggur þar,
bara bráðendis hlessa
og breiðir út lappirnar. -
Hin villan er í greininni: „Hús-
dýrin okkar í 1100 ár", en þar
stendur m. a.:
Því er ekki að neita að sagnir
þær, sem við eigum nú aðgang að,
eru þjóðsögur, á ýmsan hátt sann-
ar að stofni en háðar hinu sígilda
lögmáli Jóns Sigurðssonar, að
„fjarlægðin gerir fjöllin blá og
mennina mikla".
Þarna á að standa: Jóhanns Sig-
urjónssonar í stað Jóns Sigurðsson-
ar. —
Eru höfundar beðnir velvirðingar
á þessu. -
34
DÝRAVERNDARINN