Dýraverndarinn - 01.10.1975, Blaðsíða 19
Blaðaúrklippur um málefni dýra
hreindýri BJARGAÐ Á
miðjum REYÐARFIRÐI
Það hefur örugglega ekki oft
hent að menn hafi komið með
hreindýr að landi. En þetta kom
þó fyrir á Reyðarfirði í gærmorg-
un, en þá björguðu tveir Reyðfirð-
•ngar aðframkomnu hreindýri, sem
lagzt hafði til sunds á Reyðarfirði.
Hýrið var orðið það þreytt þegar
það kom í fjöruna að það gat ekki
gengið og varð að bera það í hús.
Þangað var komið með ofn og
niikið af heitri mjólk, og nokkrum
stundum síðar var dýrið farið að
hressast svo, að það var farið að
hlaupa um og til stóð að sleppa
því í gærkvöldi eða nú í morgun.
Mennirnir, sem björguðu hrein-
óýrinu á land heita Björn Þ. Jóns-
s°n og Ásmundur Magnússon.
Morgunblaðið náði tali af Birni
1 gær, og spurði hann hvernig
hefði staðið á þessari óvenjulegu
hjörgun.
»Eg var að vinna niðri á hafn-
arbryggju í gærmorgun," sagði
Ejörn, „og um kl. 8.30 varð mér
htið út á fjörðinn og sá þar eitt-
hvað. Ég hélt þá að þetta væri lér-
Htspoki eða eitthvað í þá áttina og
skipti mér ekki að því um tíma.
hegar ég kom úr kaffi um kl. 9.30
kíkti ég aftur út á fjörðinn og sá
þá að þetta hreyfðist. Nú ég kann-
a®i þetta betur og sá að hér var
hreindýr á ferð, sem lítið komst á-
úam vegna ísskænis á firðinum.
% kallaði þegar í félaga minn, Ás-
^ÝRAVERNDARINN
mund Magnússon, og fórum við
strax út á fjörð á trillu.
Við þurftum að sigla svona 500
metra út á fjörðinn til að komast
að hreindýrinu, og þegar það sá
okkur koma, reyndi það að svamla
á móti okkur. Við gátum því mið-
ur ekki innbyrt það, og tókum til
bragðs að draga það að landi með
því að halda í hornin á því. Við
fórum með það upp í fjöruna, en
þegar tii kom gat það ekki staðið
vegna þreytu og urðum við að bera
það upp í fóðurblöndunarstöðina.
Menn brugðu skjótt við, komu með
stóran ofn og mikið af heitri
mjólk, og er leið á daginn fór dýrið
að hressast og fór að hlaupa um
inni í húsinu. Ætli við sleppum því
ekki í kvöld eða fyrramálið," sagði
Björn.
Þá sagði hann að mikill fjöldi
hreindýra væri í nágrenni Reyðar-
fjarðar og hefði verið í vetur. Ekki
mun það vera mjög algengt að
hreindýr sjáist á sundi, en þau eru
samt sem áður góð sunddýr. Björn
sagðist ekki efast um, að dýrið
hefði komizt þvert yfir fjörðinn, -
það kom að sunnan - ef ísskænið
hefði ekki verið á firðinum. ísinn
hafði farið illa með dýrið og var
það víða illa sárt eftir hann.
Morgunblaðið 14■ maí 1975.
NOKKURT VARP NÆRRI
BYGGÐ
Stórutungu, 3. júní. Jörð er ó-
venju lítið frosin og þornaði því
fljótt er snjóa leysti. Veturinn var
með afbrigðum gjafafrekur og
sauðfjárbændur eyddu því miklu
fóðri. Sauðburður gekk allvel og
frjósemi ánna varð mikil. Enn eru
ær á gjöf þótt úti séu þær hafðar.
Fuglalíf var lítið í vetur. Af
snjótittlingum sást lítið. Gæti það
stafað af því hve snjór kom
snemma í hásveitum, því talið var,
að meira væri um þá í lágsveitun-
um og nær sjónum. Þrösturinn sást
þó mjög snemma hér hjá okkur og
hefur búið sér hreiður í skurðbökk-
um í túnum og svo er um fleiri
fugla, sem hafa sér fasta búsetu
hér.
Hér verpa gæsir. Grágæsir verpa
í hólmum og hraunum og heiðar-