Dýraverndarinn - 01.10.1975, Side 24
leg lög. Hann spurði einu sinni
Jónas Helgason tónskáld, hvort
hann vildi ekki reyna að skrifa nót-
urnar, sem fuglarnir fylgdu þegar
þeir syngju sem fallegast. Jónas
hló að þessari spurningu, en sagði
samt: „Reyna mætti það, og ekki
er því að neita að eftir einhverjum
reglum virðast þeir syngja."
Felumynd
Hænan þarna á myndinni er að
sýna ungunum sínum, hvernig
heimurinn lítur út. Hún segir þeim
einnig, að þeir skuli vara sig á
kettinum, tófunni og fálkanum.
Ungarnir líta í allar áttir, en geta
ekki komið auga á neinn af þess-
um óvinum. Getið þið hjálpað
ungunum til þess að finna kött,
tófu og fálka á þessari mynd? Þessi
dýr fela sig vel. Það gæti jafnvel
verið, að það sæjust aðeins haus-
arnir á þeim.
Ekki er vitað hvort hann hefur
nokkurn tíma reynt að skrifa nót-
urnar í lögum fuglanna.
Gcetu söngkennarar skrifað fugla-
söng á nótnablað?
„Fuglarnir eru fallegustu verur,
er drottinn hefur skapað," sagði
maður, sem hét William Jenning
Bryan.
„Fuglasöngur er fegurri en söng-
ur sjálfra englanna," sagði maður,
sem hét Luther Burbank.
„Sá, sem hefur skemmtun af því
að særa og drepa fugla, hann er
annaðhvort grimmur óþokki eða
hugsunarlaus bjálfi," sagði enn
annar maður, sem hét Robert Ing-
ersoll.
Það er satt, að fuglarnir eru fall-
egir. Sumir fuglar eru skreyttir svo
glæsilegum litum að ekkert jafnast
á við þá, nema ef til vill blómin.
Sumir þeirra syngja svo vel og un-
aðslega, að mennirnir eru þar langt
á eftir.
Þorvaldur Thoroddsen hélt því
fram, að sumir fuglar syngju eftir
nokkurs konar nótum, syngju reglu-
24
dýraverndarinN