Dýraverndarinn - 01.12.1977, Side 4

Dýraverndarinn - 01.12.1977, Side 4
Dýrin og við Að þessu sinni ætla ég að ræða um hvolpafullar tíkur, frá því að eggin frjófgast og þar til fæðingin er afstaðin. Tíkur fara í sitt fyrsta stand „að lóða" frá 6-10 mánaða og fer það eftir stærð. Stærri tíkur byrja oft seinna eða um 10 mánaða. Ekki er æskilegt að tíkin verði hvolpa- full á sínu fyrsta standi. Til að verj- ast óæskilegrar frjófgunar er ágætt að vera vel að sér um lóðandi tík- ur. Kynfæri tíkarinnar þrútna nokkr- um dögum fyrir standið. Fylgjast skal vel með fyrsta blæðingardegi og telja dagana frá þeim degi. Tíkin er aðeins frjó í tvo til fjóra daga, þ. e. a. s. er egglos verður. Egglosið byrjar á 9—12 degi frá því að blæðingar hefjast. Þetta er þó afar einstaklingsbundið og gæta skal tíkarinnar vandlega frá 7. degi til 15. dags. Þannig er enginn vandi að passa tík á lóðaríi. Tvö örugg ráð eru þó til að kanna hvenær tík- in er tilbúin fyrir hundinn. 1. Þeg- ar útferðin eða blóðið er orðið ljós- rautt á lit. 2. Að strjúka fremst við rófuni eða til hliðar við kynfærin og fer þá skottið strax til hliðar. Ef tíkin á ekki að verða hvolpa- full skal gæta hennar vandlega. Alltaf skal fara með hana út í ól þó ekki sé nema rétt út í garð. Gæta skal vandlega að útidyrahurð. Tíkin situr oft um hana og reynir að smjúga út við hvert tækifæri. Ef ákveðið hefur verið að tíkin skuli verða hvolpafull skal leiða hana fyrir hund á þeim dögum er greint er að ofan. Til öryggis um að frjófgun verði er ágætt að leiða hana 2-3svar fyrir viðkomandi hund með eins til tveggja daga millibili á því tímabili sem hún er tilbúin. Tíkin mun aðeins sam- þykkja hund, þegar hún er tilbúin þó svo að allir „herrarnir" í ná- grenninu séu búnir að heimsækja hana löngu áður en blæðingar hóf- ust. M eðgönguttminn: Yfirleitt sést ekki fyrstu 5 vik- urnar hvort frjófgun hefur átt sér stað nema þá af dýralækni á 3.-4. viku. Spenar byrja að þrútna og maginn að fyllast á 6. viku. Nútíma meðferð á hvolpafullum tíkum er sú að ekki þarf að auka matarskammtinn nema 2 síðustu vikurnar. Má þá gefa næringarík- an morgunverð auk góðs kvöldmat- ar í stað einnar máltíðar á dag eins og venjan er með fullorðna hunda. Morgunverðurinn má þá vera mjólk, hrært egg, Weetabix, (S. S. búðirnar) grautar, heilhveiti- brauð og fleira. Kalk skal gefa frá byrjun meðgöngutímans. Kalk- ið fæst í apótekum bæði í duft- formi og töfluformi. Duftið má blanda með matnum, 1 tsk fyrir hver 4 kg. Magn taflanna er 1-2 töflur fyrir hver 5 kg. Sérstakt kalk- duft og vítamíntöflur fyrir hvolpa- fullar tíkur og hvolpa er væntan- legt á markaðinn innan skamms. T'vær síðustu vikurnar má fara að kynna tíkina fyrir staðnum til að fæði hvolpana. Má þar búa til sérstakan trékassa. Tíkin finnur sér þó oft stað sjálf og skal þá setja þar tilheyrandi lök o. fl. Þegar fæðingin nálgast sem er 63. dagur eftir að frjófgun varð eða 9 vikur má byrja að mæla hana. Meðalhiti hunda er 38-38,5°. Ör- uggt er að þegar hitinn lækkar má fara að búast við fæðingu innan 24 tíma. Þegar hvolparnir hefja inngöngu sína í hheiminn skal hafa vandleg- ar gætur á tíkinni. Telja skal allar fylgjur sem koma ýmist með hverj- um hvolpi eða 2 saman eftir 2 hvolpa. Eðlileg fæðing tekur 12—24 tíma eftir að hríðir byrja. Ef hvolp- arnir eru margir hvílir tíkin sig oft upp í 12 tíma eftir að hafa átt helming hvolpanna. Ef txkin slítur ekki lífhimnuna utan af hvolp- unum skal hafa skæri eða tengur tilbúnar til að slíta frá vitum hvolp anna. A meðan á fæðingu stendur má fjarlægja þá hvolpa sem þegar eru komnir þar til allir hvolparnir eru fæddir. Þegar fæðingin er afstaðin má bjóða tíkinni mjólk að drekka og eitthvert léttmeti að éta. í næsta blaði ætla ég að ræða um fyrstu vikur hvolpanna. Sigfríð Þórisdóttir. 4 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.