Dýraverndarinn - 01.12.1977, Side 7
Avarp
/
a
degi
dýranna
Á Degi dýranna var eftirfarandi
ávarp sent fjölmiðlum:
Næstkomandi sunnudag þann
18. sept. er Dagur dýranna. Stjórn
S. D. í. notar daginn að þessu sinni
tii að minna á villtu dýrin á íslandi.
Það eiga fleiri rétt til landsetu
hér en hinir tvífættu herrar sköp-
unarverksins sem kalla sig íslend-
inga og þau dýr sem þessir sömu
herrar hafa sér tii lífsviðurværis.
Um allt land og í sjónum um-
hverfis landið Iifir urmull dýra -
stórra og smárra. Dýr sem eru há-
þróuð og önnur sem eru lágþróuð.
Okkur mönnunum hættir til að
vanmeta það gildi sem þessi dýr
hafa og þann rétt sem þau óum-
deilanlega hafa til landsins. Við
troðum meira og minna á þessum
rétti, án umhugsunar. Og þegar
hagsmunir mannanna og dýranna
í landinu rekast á, — hver hefur þá
sitt fram???
Við setjum friðunarlög. Stund-
um að því er virðist dálítið handa-
hófskennd. Við fáum gífurlega
DÝRAVERNDARINN
verndartilfinningu gagnvart einni
dýrategund fram yfir aðra og
verndum hana þá með oddi og egg,
en reynum að eyða og helst útrýma
annarri, og erum þá ekki ætíð
vönd að meðulunum.
Stundum alfriðum við ýmsar
fuglategundir, eins og t. d. æðar-
fuglinn og þá lokum við augunum
fyrir því að æðarkollur drukkna
hundruðum saman í grásleppunet-
um sem lögð eru á grunnsævi. Við
fóðrum svartbakinn gengdarlaust
á sorpi og fiskúrgangi með annarri
hendinni en viljum svo eitra fyrir
hann með hinni. Og svona má lengi
telja.
Stjórn S. D. í. skorar á yfirvöld
að taka upp nýja stefnu í þurrk-
unaraðgerðum á mýrum og öðru
votlendi, þannig að aldrei verði
þurrkað upp landsvæði án þess að
nákvæmar athuganir sérfræðinga á
lífríkinu verði látnar ráða.
Einnig skorar stjórn S. D. í. á
yfirvöld að sorpi og fiskúrgangi
verði eytt á annan hátt en nú er,
þannig að fuglar komist alls ekki
að honum. Þá mun náttúran sjálf
sjá til þess að fjölgun þeirra haldist
í skefjum.
Stjórn S ,D. í. beinir því til
landsmanna að virða rétt villtu dýr-
anna í landinu og gera þeim ekki
landið óbyggilegt.
Stjórn Sambands
dýraverndunarfélaga
íslands.
Nýir tránaðarmenn
Enn bœtist við fjöldi trúnaðar-
manna sem S.D.Í hefur um landið.
Hér koma þeir nýjustu:
Breiðuvíkurhreppur, Snæfellsnesi:
Finnbogi Lárusson, Laugabrekku
Eyrarbakkahreppur, Árnessýslu:
Sigurjón Bjarnason, Merkissteini
Hvollshreppur, Skag. Guðmundur
Þór Jónsson, Saurbæ
Miklaholtshreppur, Snæfellsnesi:
Kjartan Eggertsson, Hofsstöðum
Seyluhreppur, Skagafirði:
Markús igurjónsson, Reykhóli
Viðvíkurhreppur, Skagafirði:
Björn Runólfsson, Hofsstöðum
7