Dýraverndarinn - 01.12.1977, Qupperneq 8
Minning
Hjónin Gnðrún Guðfinna Schram
og Gísli Björnsson, húsasmiður,
Hverfisgötu 86, Reykjavík.
Gísli er einn af þeim fremur fáu,
sem náð hafa 100 ára aldri, en
hann er nú dáinn fyrir skömmu.
Gísli fæddist að Dísarstöðum í
Breiðdal 10. febrúar 1876 en flutt-
ist með foreldrum sínum að Hösk-
uldsstaðaseli tveim árum seinna.
Flest frændfólk Gísla fluttist til
Ameríku um þetta ieyti, enda voru
þá vesturfarir alltíðar hjá fólki af
Norðausturlandi. Var slæmu ár-
ferði um kennt, sem kunnugt er.
Gísli hleypti einnig heimdragan-
um og hélt til Reykjavíkur er hann
var rúmlega tvítugur. Réði hann
sig í trésmíðanám hjá Jónasi Jón-
assyni í Hlíðarhúsum, kunnum
húsasmíðameistara. — Árið 1905
staðfesti hann ráð sitt og varð hans
kona Guðrún Guðfinna Schram.
Gísli hafði þá byggt sér hús á
Hverfisgötu 86 og bjuggu þau hjón
þar til dauðadags, en Guðrún dó
1950.
Guðrún G. Schram var glæsileg
kona og var hún rómuð fyrir feg-
urð og myndarskap. Hún var fædd
að Stuðlakoti í Reykjavík 25.
desember 1876. Foreldrar hennar
voru Ingibjörg Guðmundsdóttir og
Þorlákur Schram. (Hann var bróðir
Ellerts Schram skipstjóra). Foreldr-
ar Guðrúnar fluttu til Ameríku
þegar hún var kornung.
Mörg eru þau húsin, sem Gísli
Guðrún Guðíinna Þorláksdóttir Schram.
8
DÝRAVERNDARINN