Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1977, Page 12

Dýraverndarinn - 01.12.1977, Page 12
Dýraspítalinn Spítalinn var gefinn með gjafa- bréfi 1974, af lir. Mark Watson, eftirtöldum aðilum: Dýraverndunarfélagi Reykja- víkur, Sambandi dýraverndunarfélaga íslands, Hestamannafélaginu Fáki, Hundavinafélagi íslands, Sambandi sveitarfélaga í Reykja- nesumdæmi, Reykjavíkurborg. Þessir aðilar tilnefndu tvo aðila hver í sjálfseignarfélag, sem stofn- að var 20. maí sl. Markmið þessa félags er að efla og auka áhuga al- mennings á dýrum og dýravernd. Markmiði þessu hyggst félagið ná m. a. með rekstri dýraspítala Wat- sons. Húsið, sem er verksmiðjufram- leitt timburhús 130 m2 að stærð, var reist af Reykjavíkurborg, sem einnig gaf !óð undir það. Bruna- bótamat hússins er kr. 10.000.000. Á stofnfundinum 20. maí sl. var kosin stjórn félagsins, en hana skipa: Sigríður Ásgeirsdóttir hdl. fulltrúi Reykjavíkurborgar, sem er formaður, Sverrir Þórðarson blaða- maður, fulltrúi Sambands dýra- verndunarfélaga á íslandi og Guð- mundur Ólafsson, gæslumaður full- trúi Fáks, eru meðstjórnendur. í varastjórn voru kosin: Magnús Er- lendsson, fulltrúi Sambands sveit- arfélaga í Reykjaneskjördæmi sem varaformaður, en varamenn í stjórn þau Hrefna Kristjánsdóttir frá Dýraverndunarfélagi Reykjavíkur 12 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.