Dýraverndarinn - 01.12.1977, Síða 30

Dýraverndarinn - 01.12.1977, Síða 30
Ur gamalli dýralækningabók GREINING SJÚKDÓMA Til þess að komast að raun um hvaða sjúkdóm sé um að ræða, verður oftast að skoða sjúklinginn og rannsaka hann ýtarlega. Dýra- læknirinn verður þá helst að mynda sér ákveðna aðferð. Fyrst og fremst þarf að spyrja um skepn- una og sjúkdóm hennar áður en læknis var leitað: Hve lengi hefur hún verið sjúk? Hvað hefur verið reynt við hana? Slíkar upplýsingar eru oft mikilvægar, einkum þeg- ar á það er litið, að skepnan er mállaus og getur því alls ekki tjáð sig. — Þá skoðar dýralæknirinn húð dýrsins: Er hún of heit? Þurr?, sveitt? særð eða með útbrotum?, eða hvort á henni sjáist snýkjudýr. Húðin verður nefnilega oft — vegna sjúkdómsins hörð, þurr og situr föst, háralagið verður úfið, oft ljótt. —- Einnig athugar dýralækn- irinn slímhimnurnar: augna- munn- og nasaslímhimnurnar. Þessar himnur verða oft fölar (blóðlitlar) vegna sjúkdómsins, en stundum þó aftur á móti rauðar og bólgnar og rennur oft vessi af þeim. — Hjarta- og æðaslátt ber að at- huga vandlega. Æðaslög hesta er auðvelt að telja með því að leggja vísifingur léttilega á kjálkaslagæð- ina innanvert og neðantil á kjálk- anum. Á kúm er sömuleiðis best að telja æðaslögin á kjálkaslagæð- inni eða framfótar-slagæðinni uppi 30 SigurSur E. HlíSar. við brjóst, en á hundum á lærslag- æðinni á miðju læri innanverðu. — Þegar slagæðar eru fundnar, eru slögin talin og er athugað hvort þau séu regluleg, kröftug eða lin. Æðaslátturinn á að vera: í hrossum .... 25-40 slög mín. - nautgr...... 36-60 — - sauðfé, geitum 70-80 — — - svínum .... 40-50 — — - hundum .... 70-120 — — - köttum .... 120-170— -— Hjartað er best að athuga frá vinstri hlið skepnunnar og er auð- veldast sé framfætinum haldið fram. Líkamshitann er áríðandi að þekkja. Sé skepnan heilbrigð, er hann nokkurnveginn eins, þó er hann ávalt hærri að kvöldinu en á morgnana, mismunurinn fer þó aldrei fram úr 1°. Hitann skal mæla með hitamæli, sem stungið er inn í endaþarm skepnunnar og falinn þar 2—5 mínútur. Gæta skal þess að kviksilfurssúlan sé niðri, áður en mælirnum er stungið inn, og einnig ber þess að gæta, að hún hristist ekki niður, eftir mæl- ingu, áður en lesið er af mælinum. Þarf því að halda honum sem næst láréttum. Að réttu lagi er líkamshiti ali- dýranna sem hér segir: Hrossa .......... 37,5-38,5 gr. C Nautgripa........ 38,0-39,0 — Sauðfjár ........ 39,0-40,5 — Geita............ 39,0-40,5 — Svína ........... 39,0-40,0 — Hunda ........... 37,5-39,0 — Katta ........... 38,0-39,0 — Hænsna .......... 41,5-42,5 — Sé líkamshiti skepnu hærri en ofangreind tafla sýnir, er sagt að hún sé með hita eða hitasótt. Hita- sótt geta skepnur fengið með fjöl- mörgum kvillum og öllum bakt- eríusjúkdómum. Við erfiði, á- reynslu og í mjög heitum húsum stígur líkamshitinn þó nokkuð, en aðeins um stundarsakir. Líkamshiti hunda er dálítið mis- munandi, sem fer eftir tegundum. Líkamshitinn sýnist stundum lægri á mælinum en vera ber, t. d. með Doða. Liggur þetta í því, að blóðsóknin til endaþarms doða- sjúklings er minni vegna lömun- ar í afturparti líkamans. Rannsóknir á öndunarfærum byrjar með því, að athuga andar- drátt sjúklingsins: Er hann eðli- DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.