Heimir : söngmálablað - 01.07.1935, Blaðsíða 8

Heimir : söngmálablað - 01.07.1935, Blaðsíða 8
8 Sigfíis Einarsson 7. Ivar Skárseth: Dalen. 8. a. M. M. Ulfrstad: Norge, Norge. b. Johs. Haarklou: Fenrir. 9. R. Nordrák: Norsk Fedrelandssang. Eg þykist vila, að flestir meðiimir islenzkra karlalcóra kannist við mörg af þeim lögum, sem nú voru talin, og svo mundi fara, þótt birtar væru fleiri söngskrár, enda voru langflesl lög'in eftir gamalkunna höfunda. Gat eg ekki varizt þeirri hugsun að söngmótinu loknu, er eg renndi huganum yfir allt, sem eg hafði heyrt, að í Noregi, eins og víða annars slaðar mundi vera nokkur Iiörgull á nýjum karlakórslögum, sem verulegur slægur væri i, og kynni ástæðan að vera sú, að hin yngstu og elm- legustu tónskáld þjóðanna gefi sig frekar við öðrum við- fangsefnum. Skemmlileg tilbreytni var söngur kórsins „De svenske“, undir stjórn Emils Carelius. Var hann kominn hér sem fulltrúi sænskra karlakóra, og söng nú fáein lög í miðjum kliðum, mjög prýðilega, og færði síðan lands- sambandi Norðmanna gullhörpu að gjöf frá karlakórs- sambandi Sviþjóðar og lárviðarsveig mikinn frá samband- inu í Stokkliólmi. Er þessa getið til athugunar við lík tæki- færi siðar. Um sönginn á þessum konsert i Þjóðleikhús- Inu mun eg ekki dæma5 en læt mér nægja að hirta í ís- lenzkri þýðingu ummæli, er stóðu í „Tidens Tegn“ eftir tinn af söngdómurum blaðsins (Arne van Erpekum Sem). Hann segir svo: „Það yrði of langt mál, ef fara ætti í mann- jöfnuð milli hinna einstöku kórsambanda. Allir gerðu það, sem i þeirra valdi stóð og náðu þeim árangri, sem efni slóðu til. Því ber ekki að neita, að í norskum kórum er venjulega skortur á góðum og glæsilegum tenorum, bvcr svo sem ástæðan kann að vera. Því verður lieldur ekki leynt, að söngurinn er ekki ávall svo hreinn, sem æskilegt væri. Eftirtakanlegt er það, hversu lítil svip- brigði eru á andlitum manna í norskum kórum. Það er sami háalvarlegi svipurinn, hvort sem sungið er rauna-

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.