Heimir : söngmálablað - 01.07.1935, Qupperneq 19

Heimir : söngmálablað - 01.07.1935, Qupperneq 19
Schuts Hándcl — Bach 19 inn og hjálpsamur yngri tónlistarmönnum. Hann var eilt hið mesla göfugmenni, sem tónlistarsagan getur um. Hándel og Baeli voru fæddir sama árið, 1685, og voru því liðin 250 ár' frá fæðingu þeirra. Fyrri liluta æfi sinnar sanrdi Hándel mestmegnis óperur, og varð hann i'vrir miklunr áhrifum frá ítölum. Hann ferðaðist um Italíu og flutti þar t. d. óperu sina „Rodrico“ í Florenz og „Agrip- pina“ i Feneyjum. Gerðist hann um tíma áhrifamaður tón- listarlífs suður þar og kynntist j)eirra tíma mestu tónsnill- ingum á ítaliu, svo sem Lotti, Scarlalti og Corelli. Annars ferðaðist Ilándel víða um og var mjög eftirsóttur. Tvisvar sótli hann England heim, og í síðara skiftið settist hann þar að fyrir fullt og allt. 1 London stofnaði hann óperu- leikhús, en álli i miklum örðugleikum, sem mest stöf- uðu af óvægilegri samkeppni. 1736 fékk liann aðkenn- ingu af slagi og varð máttvana um hrið. Þar við l)ælt- ist eignamissir. En Hándel náði sér innan skamms aftur og tók til óspilltra málanna. Upp frá þessu samdi hann svo að segja eingöngu „Oratorium“. Áður hafði hann að vísu samið nokkur slík verk, en nú l)iðu hans þau verkefni, sem áttu eflir að skipa honum i röð hinna mestu meistara og gera nafn lians ódauðlegt. Þarf ekki að nefna önnur en þessi verk til dæmis: „Deborali“, „Messias“, „Samson“, „Judas Maccabáus“. Auk þessara verka er fjöldi verka fyrir hljómsveit og önnur hljóðfæri, scm halda munu nafni hans uppi Iiáa tíð. Hándel var glæsimenni hið mesla, risavaxinn og hraust- ur fram eftir æfinni. Hann dó 1759 í London og liggur grafinn meðal stórmenna Englendinga i Westminster- Alil)ey. Englendingar telja Hándel meðal sinna mikil- menna, og má það til'sanns vegar færa, enda þótt hann væri fæddur í Þýzkalandi, og Þjóðverjar telja liann að sjálfsögðu meðal sinna mestu tónskálda. 1 Englandi dvaldi liann hezla liluta æfi sinnar, samdi ]iar sín beztu verk og varð í öllu samgróinn hinni hrezku þjóð. Geta því Rretar lilið á hann líkt og Þjóðverjar lita á Buxtehude,

x

Heimir : söngmálablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.