Heimir : söngmálablað - 01.10.1935, Page 13

Heimir : söngmálablað - 01.10.1935, Page 13
Prins Gustaf 37 í fulla þrjá fjórðunga aldar liafa slúdentar á Nor'ður- löndum sungið þennan söng, án umhugsunar um það, hvort lífið yrði langt eða stutt, dimmt eða hjart, fálækt eða ríkt. Þetta lag syngja allir stúdentar, bæði lagvisir og ólagvísir. En þeir Iiafa ekki allir vitað, að höfundur lags- ins var rúmlega tvitugur konungssonur, Gústaf prins, berlogi af Uppsölum, sonur Óskars I. Svíakonungs og Josephinu drottningar, fædd jminsessa af Leuclenburg. Gústaf jjrins er af ætl Bernadotla marskálks, sem var einn af snjöllustu herforingjum Napoleons mikla. Hann var gjörður að konungi i Svíþjóð. Afkomendur hans hafa margir verið gáfaðir menn. Óskar II. Sviakonungur, bróðir lónskáldsins, var ræðusnillingur. Carl XV. Svía- konungur orti kvæðið: „Stilla, slilla susar gröna skogens sáng!“ Norska tónskáldið .Toh. Svendsen hefir samið kór- lag við kvæðið, og er það hirt i Organtónum; kvæðið í laus- legri þýðingu Guðmundar Magnússonar (Jóns Trausta) („Friður, friður hlíður faðmar strönd og sund“). Menn vita ekki með vissu, hvenær Gústaf prins samdi þennan stúdentasöng. Það hefir verið nálægt árinu 1850. En jiað er ])ó vilað með vissu, að lagið varð til á undan kvæðinu. Skáldið Herman Sátherberg — en bæði Gústaf prins og Otto Lindblad hafa samið lög við kvæði eftir hann — getur jiess i endurminningum sínum, að dag noklcurn hafi hann verið hoðaður á fund prinsins. Prins- inn kvaðst ætla að ferðast til Uppsala næsta dag, til þess að reyna að koma fjöri i stúdentasönginn, og hefði liann i þeim tilgangi samið kórlag. Hann bað síðan skáldið að scmja kvæði við lagið. Hvort prinsinn hefir fengið kvæð- ið með sér í ferðina, eða að jiað hafi verið ort síðar, liermir ekki sagan. Kvæðið er tvö erindi. Seinna erindið er ættjarðaróður („Svea, vár moder, lmgstor och skön.“). En jiað er aldrei sungið. Fyrra erindið „Om studentens lyckliga dag“ er ávallt eitt sungið, en hinu slejjpt. Lagið var sungið opinherlega í fyrsta sinn árið 1852 á stúdenta-

x

Heimir : söngmálablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.